9.8.2025 | 23:20
Glæpur aldarinnar: Hálfguðirnir
Miðað við lekna bóluefnasamninga liggur í dag fyrir að áður en covid-bólusetningar hófust vissu yfirvöld að virkni bóluefnanna var óþekkt, allar langtíma aukaverkanir og margar skammtíma aukaverkanir væru óþekktar og að framleiðandinn þorði því ekki að taka neina ábyrgð á skaða sprautanna. Þessu var haldið leyndu fyrir almenningi, sem fyrir vikið tók hina lífshættulegu sprautu. Tugþúsundir eru í sárum og margir hafa látið lífið í framhaldinu, en enginn þorir að viðurkenna neitt.
Í ljósi þessara uppljóstrana um tvöfeldni yfirvalda á covidtímanum langar mig að rifja um síðustu grein í greinaseríunni um glæp aldarinnar, sem fjallar
==============
Grein í morgunblaðinu 10. Ágúst 2024
==========================================
Glæpur aldarinnar: Hálfguðirnir
Dreifing covid-andláta á Íslandi er ráðgáta. Af hverju dóu flestir eftir að covid var orðið mildara omicron-kvef?
Þessi grein er framhald af samnefndum greinum, glæpur aldarinnar um kófið. Nú verður fjallað um hálfguðina sem leiddu för.
Það er ríkt hjá mörgum að treysta læknum enda er sagt: Þú átt alltaf að treysta lækninum þínum.
Slík útvistun á hugsun á þó engan rétt á sér því Hippókratesareiðurinn er löngu dauður og eftir situr nýrri útgáfa fyrst skal ei skaða starfsframann. Læknar í fjölmiðlum hafa flestir hagsmuna að gæta sem ræður ráðgjöfinni. Hagsmunir lyfjafyrirtækja eða framapots í kerfi sem verðlaunar þá sem klappa hæst. Ráðgjöf lækna í kófinu hefur því elst illa.
Tilraunin
Í upphafi bólusetningaherferðarinnar fullyrti yfirlæknir ónæmisfræðideildar að bóluefnin byggju til hjarðónæmi og að hliðarverkanir væru bara bóluefnin að virka.1) Þetta var stefna yfirvalda og 11. júní 2021 tilkynnti sóttvarnalæknir: Við erum komin með gott hjarðónæmi. Tveimur mánuðum síðar kom nýr boðskapur og sagt að allir yrðu að smitast til að fá hjarðónæmi.2) Öðrum tveim mánuðum síðar var hann farinn að hvetja til bólusetningar barna því barn hefði fengið blóðtappa í lungun eftir covid.3) Það láðist þó að nefna að umrætt barn var nýbólusett sem bældi ónæmiskerfið akkúrat þegar það smitaðist.4) Ámælisvert er að slíkur augljós bóluefnaskaði hafi verið notaður til að hvetja fleiri börn í eitursprautu sem olli hjartavöðvabólgu í 3% sprautaðra.
Leikhús fáránleikans
Allar sóttvarnaaðgerðir reyndust vera sóttflóttaaðgerðir því á endanum smituðust allir. Verðbólgan í dag er að öllu leyti afleiðing þessar aðgerða sem voru réttlætar af sóttvarnalækni með því að það myndi hvort er eð enginn ferðast. Fullorðnum var bannað að dansa og skemmta sér í hópum, en börn voru undanþegin. Þau voru samt send í eitursprautuna. Varðeldar voru bannaðir og samkomur sem stóðu lengur en til 1:00 (háttatími). Fólk átti að ferðast innandyra og jólin urðu að jólakúlum. Á landamærum fóru óbólusettir í sóttkví á meðan bólusettir sluppu löngu eftir að vitað var að bóluefnin hindruðu ekki smit. Fólki í sóttkví var bannað að nota bílaleigubíl en máttu nota strætó í göngufríinu sínu.
Covid-sjúklingar þurftu að bíða úti í 1-2 klst. í hríðarbyl eftir covid-prófi og fólki í einangrun var sagt að taka hitalækkandi strax við 38,5°C og borða og drekka þótt það hefði ekki lyst.5) Þessi ráð bæla ónæmiskerfið og gera fólk veikara.
Þótt viðurkennt hafi verið að grímur virkuðu ekki í Landakotssmitinu því smit var loftborið, er nú aftur komin grímuskylda á spítölunum. Yfirgripsmikil Cochrane-rannsókn á grímum6) hefur nú sýnt að grímur drógu ekki úr smiti. Í tilmælum til starfsmanna spítalans er þeim þótt gefin undanþága á grímuskyldunni ef þeir eru án kvefeinkenna. Starfsmönnum er því talin trú um að það sé í lagi að mæta til vinnu með kvef bara ef þeir nota grímu.
Ráðgátan
Covid-andlátin á Íslandi eru ráðgáta, því flest urðu eftir að covid var orðin mild kvefpest. Ný rannsókn á umframandlátum í 125 löndum bendir á að röng meðferðarúrræði kunni að vera skýringin.7)
Eftir að Landspítalinn greip aftur til covid-aðgerða nú í júlí eru allir sjúklingar skimaðir. Í einu tilfelli, sem greinarhöfundur þekkir til, var sjúklingur á leið í krabbameinsmeðferð settur á lyfið remdesivir eftir að hafa mælst með einkennalaust covid. Lyfið fékk neyðarleyfi í kófinu en í dag sýna rannsóknir að það eykur veikindi, dánarlíkur og 20-faldar líkur á nýrnabilun.
Í úttekt Skota á covid-tímanum8) kom í ljós að að endurlífgun sjúklinga var oft bönnuð og þeir settir á lífslokameðferð án samþykkis.
Hér á Íslandi þekkir greinahöfundur til tveggja tilfella frá 2022, þar sem eldri sjúklingar komu á bráðamóttöku (annar vegna bakverkja og hinn með brotið rifbein) og voru mældir með einkennalaust covid. Báðir voru settir á covid-meðferð og voru dánir á fimm til tíu dögum.
Læknasamtökin FLCCC hafa tekið saman helstu rannsóknir á covidlyfinu remdesivir. [10] Niðurstöðurnar eru skelfilegar og óskiljanlegt af hverju enn er verið að nota þetta rándýra stórhættulega lyf hér á landi.
Þetta er undarlegt því covid var alltaf það mildur sjúkdómur að enginn dó heima hjá sér. Eina mögulega skýring andlátanna er að meðferðin hafi beinlínis verið skaðleg eins og í Skotlandi. Á lyfjaplani annars sjúklingsins (sem greinahöfundur hefur séð) sést að hann fékk remdesivir, sterameðferð sem bældi ónæmiskerfið og morfín- og opíóðalyf sen hindra súrefnisupptöku. Þetta var lífslokameðferð.
Ólíklega er þetta einsdæmi. Hversu margir fengu remdesivir og tengdar aukaverkanir? Hversu margir fengu lífslokameðferð eða bann við endurlífgun? Voru öndunarvélar ofnotaðar hér eins og gerðist í New York?9)
Áríðandi er að gera íslenska rannsókn í anda þeirrar skosku sem svarar þessum mikilvægu spurningum. Slík rannsókn þarf að vera gerð af óháðum aðilum óháðri valdablokk heilbrigðiskerfisins sem ber ábyrgð á mistökunum.
Vanþekking er aldrei vörn og þeir sem ekki læra að mistökum fortíðar eru dæmdir til að endurtaka þau. Þetta þolir enga bið því heilbrigðiskerfið virðist aftur komið á sömu sjálfstýringu og áður.
=================================
Enn ríkir algjör afneitun hjá yfirvöldum um sprautuskaða og fyrir vikið fá fáir þá hjálp eða meðferð sem þeir þurfa á að halda. Heilsuvon, hagsmunasamtök sprautuskaðaðra eftir C19 sprautu eru að vinna að því að rödd þessa fólks heyrist svo yfirvöld þurfi að bregðast við.
Hvet alla sem vettlingi geta valdið að styðja við þessi samtök og þetta mikilvæga málefni. Af tilefninu mun ég og eiginkona mín hlaupa Reykjavíkurmaraþon nú á Menningarnótt og það er hægt að heita á okkur hér (ég , Anna)
English:
Um bloggið
Jóhannes Loftsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.9.): 133
- Sl. sólarhring: 329
- Sl. viku: 2799
- Frá upphafi: 102822
Annað
- Innlit í dag: 126
- Innlit sl. viku: 2484
- Gestir í dag: 125
- IP-tölur í dag: 124
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Jóhannes,
Þú talar hér um að þetta sé Glæpur aldarinnar, nú og það er vissulega rétt hjá þér allt saman, en það má segja að heilbrigðisyfirvöld hafi nákvæmlega ekkert lært eftir allar þessar bólusetningar gegn svínaflensu, svo og beita ósannindum áfram.
Á sínum tíma var reyndar kvartað yfir þeim Haraldi Briem sóttavarnarlækni og Þórólfi Guðnasyni yfirlækni Sóttvarnarsviðs vegna þá ósanninda þeirra um að bóluefnið (Pandemrix) gegn svínaflensu (A/H1N1) hafi verið öruggt.
Það þykir alls ekki gott þegar menn fara með ósannindi í alla fjölmiðla, með að bóluefnið gegn svínaflensu (Pandemrix) sé öruggt, og/eða þegar allt er gert svona með ósannindum í nafni embættisins, rétt eins og einhver sviksamleg sölumennska er menn kannast við úr viðskiptalífinu, þegar að nákvæmlega ekkert af upplýsingum liggja fyrir ( "No Data" ) varðandi barshafandi konur um öryggi þeirra. Sjá leiðbeiningar frá framleiðanda Pandemrix bóluefnisins frá GlaxoSmithKline Nr. 4.6:
“There are currently no data available on the use of Pandemrix in pregnancy.” (sjá leiðbeiningar bóluefnisins)
Í stuttlegri og/eða lauslegri íslenskri þýðingu: Það er ekkert til af gögnum ("No Data") til staðar um notkun á bóluefninu fyrir barnshafandi konur. Nú þetta segir okkur að bóluefnið var alls EKKI öruggt fyrir barnshafandi konur, þar sem að gögn (eða "No Data") voru ekki til staðar. Þessir embættismenn sögðu almenningi að bóluefnið væri öruggt og uppfyllti alla staðla (eða “Bóluefnið á að vera öruggt” Pressan 14. okt. 2009, “..sóttvarnarlæknir fullyrðir að efnið sé öruggt…” Vísir 06. sep. 2009, “..bóluefnið sem notað er hér á landi uppfyllir alla staðla um öryggi.” Fréttablaðið 21. des 2009 og “..bóluefnið er mjög öruggt..” DV 4. nóv 2009).
Barnshafandi konum voru sögð þessi ósannindi og þær sérstaklega flokkaðar í forgangshópa og nákvæmlega ekkert sagt við þær annað en að bóluefnið væri öruggt. Ég veit ekki hvernig það er hér, en erlendis þegar embættismenn taka upp á slíku, eða auglýsa ó-öruggt bóluefni sem öruggt bóluefni í fjölmiðlum hvað eftir annað, þá fara menn erlendis fram á embættissviptingu eða krefjast afsagnar slíks embættismanns. Þar sem þetta er mjög alvarlegt mál : “...the virologist Marc Van Ranst, to be fired after he said on Thursday that the Pandemrix swine flu jab with the adjuvant squalene was safe for pregnant women, reports Belgian's Le Soir newspaper..” ( "Belgian doctors call for sack of government virologist in row over swine flu adjuvant advice.." )
Ég efast efast um að menn geti beitt fyrir sér vanþekkingu í þessu sambandi, þar sem ætlast er til þess að embættismenn kynni sér leiðbeiningar og gögn um bóluefnið áður, ég tala ekki um þegar hérna var um að ræða “mock-up"- bóluefni veitt með sérstöku markaðsleyfi undir farsóttarkringumstæðum, eða eins og segir hjá Lyfjastofnun Evrópu ( EMA ) :
“authorised under Exceptional Circumstances' og svo hins vegar á vefsíðu hjá bóluefnafyrirtækinu GlaxoSmithKline, segir : "Clinical trials will be limited, due to the need to provide the vaccine to governments as quickly as possible. Additional studies will therefore be required and conducted after the vaccine is made available." http://www.gsk.com/media/.../2009_pressrelease_10077.htm
Það er ekki hægt að segja að þessir embættismenn séu löglega afsakaðir, hvað þetta varðar. Auk þess er vitað til þess að niðurstöður úr klínískum rannsóknum á barnshafandi konum voru ekki komnar fram, þar sem rannsóknirnar byrjuðu ekki fyrr í september mánuði 2009.
Sjá á netinu greinar eða hérna : “Only swine flu vaccine trial on pregnant women not set to finish until July 2010 and have no adjuvants”, “German doctors association issued warning about swine flu jab last week....in view of lack of data on its safety, especially for pregnant women and children ..” , “Doctors in Germany protest swine flu japs with adjuvants for kids say no clinical data proving safety available lagt inn til ráðuneytisins þann 11/01/11) , “H1N1 Vaccine Deaths in Germany: German doctors issued warning about swine flu jab ...lack of data on its safty especially for pregnant women ..”
Þá voru auk þess ekkert af gögnum til staðar varðandi börn og unglinga yngri en 18 ára. sjá leiðbeiningar með bóluefninu frá GlaxoSmithKline Nr. 4.4:
“There are no safety and immunogenicity data available from clinical studies with Pandemrix (H1N1) in children and adolescents aged from 3-17 years or in children aged less than 6 months. There are very limited data available from a clinical study with Pandemrix (H1N1) in healthy children aged from 6 to 35 months and limited data from a study with a version of Pandemrix containing H5N1 antigens in children aged from 3 to 9 years."
http://www.medicines.ie/history/14441/SPC/Pandemrix+Suspension+and+Emulsion+for+Emulsion+for+injection
Í stuttlegri og/eða lauslegri íslenskri þýðingu: Það eru ekkert af öryggis-og ónæmis gögnum til staðar úr klínískum rannsóknum með Pandemrix ( H1N1 ) á börnum og unglingum frá 3-17 ára aldri eða á börnum yngri en 6 mánaða. Þetta segir okkur það að bóluefnið var alls ekki öruggt fyrir þennan aldurshóp ( 3-17 ára ) og svo sex mánaða og yngri. Það var alls ekki rétt hjá þessum embættismönnum að fara með þessi ósannindi gagnvart allri þjóðinni, þar sem ekkert bendir til þess að þetta bóluefni væri öruggt.
Sjá greinar á netinu “Swine Flu Vaccine of 2009 –Unlicensed and Untested” eftir dr. Tim O´Shea “..selling unlicensed avian flu vaccine as swine flu vaccine. ...” http://www.bibliotecapleyades.net/salud/salud_vacunas30.htm, “Top ten reasons why children should avoid the H1N1 Flu vaccine”, “Doctors in Germany protest swine flu japs with adjuvants for kids: no clinical data proving safety availble” ( http://www.boards.ie/vbulletin/showthread.php?t=2055702633&page=7 ) , “German doctors association issued warning about swine flu jab last week, “..lack of data on its safety especially for pregnant women and children..”( http://www.globalresearch.ca/index.php?context=va&aid=16208.
“Use of Pandemrix among young people and elderly appears to be unauthorised in EU”.
Þess skal getið hér sérstaklega að þegar að Heilbrigðisráðuneytið ( nú í dag Velferðarráðuneytið) undir forystu Álfheiðar Ingadóttur og Sveins Magnússonar yfirlæknis og co. fékk upplýsingar og gögn um að bóluefnið væri ekki öruggt, gerði þetta fólk nákvæmlega ekkert, eða hvað þá kom athugsemdum áleiðis svo vitað sé. Eins og gefur að skilja þá komu nákvæmlega engar leiðréttingar eða afsakanir fram í fjölmiðlum, eða eitt eða neitt frá Sveini Magnússyni yfirlækni eða ráðuneytinu í þessu sambandi.
Hvernig er það þegar embættismenn fara með ósannindi bera þeir þá ekki ábyrgð á þeim ósannindum ef um skaðabótamál er að ræða, eða ber bóluefnafyrirtækið ábyrgð þegar að bóluefnið (Pandemrix) var ekki öruggt skv. Leiðbeiningum og á vefsíðu hjá GlaxoSmithKline?
Þetta er tekið hérna sérstaklega fyrir þar sem þessir menn eru ekki að ljúga að einu manni, eða einum ákveðnum aldurshópi ( 3-17 ára) heldur allri íslensku þjóðinni.
Aðrar þjóðir auglýstu bóluefnið EKKI öruggt, og gott betur, því eins og áður segir þá eru til dæmi þar sem menn fræddu almenning um vankanta bóluefnisins, en hvað við búum ekki svo vel hér á Íslandi, heldur höfum við einhverja embættismenn sem flytja okkur ósannindi
Sjá grein á netinu í þessu sambandi: “Pandermix in Switerland not approved for pregnant women, children under 18” og "Switzerland's medical regulator recommended patients with serious autoimmune diseases should not use an H1N1 flu vaccine from Novartis, saying there were no studies...” http://www.vaccineriskawareness.com/Swine-Flu-Epidemic-H1N1-Vaccine-Deaths-and-Injuries
“Why WHO must lower its pandemic level immediately”.
Ég var búinn að heyra það að gamal fólkið á öldrunarheimilum og annars staðar átti bara að finna þessar leiðbeiningar á ensku á netinu, eða um "að bóluefnið væri öruggt", en leiðbeiningar á ensku segja, að bóluefnið sé EKKI öruggt, og þar sem lítið sé til af gögnum úr klínískum rannsóknum.
“There are limited data available from clinical studies with Pandemrix (H1N1) in adults aged over 60 years and very limited data with Pandemrix (H1N1) or with a version of the vaccine containing H5N1 antigens in adults aged over 80 years.” ( sjá leiðbeiningar bóluefnisins )
Leiðbeiningar með bóluefninu segja það beint, að bóluefnið sé EKKI öruggt fyrir 60 ára og eldri, þar sem um takmarkaðar upplýsingar er að ræða ( “limited data” ).
Til þess að farið sé eftir lögum (eða reglum) eru höfð viðurlög, en hvaða viðurlög gilda þegar embættismenn notfæra sér aðstöðu sína til hins ýtrasta og flytja allri þjóðinni ekkert annað en ósannindi?
Yfirlæknir heilbrigðisráðuneytisins fullyrti, að “framleiðendur beri ábyrgð á sínum vörum” ( bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu dags. þann 16. ágúst 2010), en eiga þá þessir embættismenn sem flytja og styðja við ósannindi EKKI að bera ábyrgð, þegar framleiðandinn auglýsti og sagði að bóluefnið væri EKKI öruggt, eða hvernig er það ætla þessir embættismenn að borga úr sínum eigin vasa skaðabætur fyrst þeir fullyrtu og/eða studdu við þvílíkar fullyrðingar að bóluefnið væri öruggt?
Það er vitað til þess að konur hafi misst fóstur eftir þessa bólusetningu, nú og auk þess er vitað um fólk sem telur sig hafa orðið fyrir verulegum og/eða umtalsverðum skaða eftir bólusetninguna, en ætla þessir embættismenn alltaf að firra sig allri ábyrgð eftir öll þessi ósannindi?
Því var ekki allri þjóðinni sagt strax í byrjun frá þessum vanköntum með Pandemrix bóluefnið gegn svínaflensu, svo og varðandi með að virkni og áhættur bóluefnanna gegn covid væri algjörlega óþekktar ???
KV. Þorsteinn.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.8.2025 kl. 21:18
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 12.8.2025 kl. 00:13
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.8.2025 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.