18.6.2025 | 19:59
Krossför með kjarnorkusprengjum
Leiðin til að skilja heiminn byrjar með spurningu. Spurningin sem þarf að spyrja til að skilja stríðið milli Íran og Ísrael er einföld. AF HVERJU?
Af hverju er Íran í stríði við Ísrael? Ekki liggja landamæraerjur að baki, því landamæri þessara þjóða liggja ekki saman. En hvað með sögulegar ástæður? Nei, ekki heldur, því Íranir(Persar) hafa alltaf skipað sérstakan sess í hugum Ísraela, því þegar hið forna Persaveldi lagði undir sig Miðausturlönd, leyfðu þeir gyðingum að flytja aftur í heimaland sitt, (sem nú er Ísrael), eftir að Assýringar höfðu tvístrað þeim og flutt nauðungarflutningum burt. Tilvist Ísraelsríkis í dag er þannig að nokkru leyti þessum góða gjörningi Persa að þakka.
Eins er líka undarlegt að Íran sé að styðja Palestínuaraba því þeir eru Súnnar, á meðan Íranir eru Sjíar. Súnnar og sjíar hafa barist banaspjótum á þessu svæði síðustu áratugi og hata hverjir aðra. Í Írak kúgaði súnninn Saddam Hussein shia, og í íran/írak stríðið milli súnna og shía féllu milljón manns. Þetta hatur hélt áfram eftir íraksstríðið. Í Sýrlandsstríðinu milli Sjía og Súnna féll hálf milljón manns og í borgarastyrjöldinni í Líbanon féllu 10-20 þúsund manns í erjum súnníta og shía. Á þessu svæði er þannig stutt á því góða milli þessara trúarhópa. Hvers vegna í anskotanum skyldi Íran því vilja fórna öllu til að verja erkióvini sína?
Stórveldisdraumur Írönsku klerkanna
Eina skýringu fjandsemi Íran má finna í bók Orwells 1984. Það hjálpar alltaf harðstjórnum að geta réttlætt harðræði við eigin þegna með ytri ógn. Eins er fátt eins öflugt til að sameina ólíka hópa og barátta við sameiginlegan óvin. Sá sem leiðir í slíkri baráttu, fær sjálfkrafa leiðtogahlutverk meðal þeirra sem styðja barráttuna. Með að ráðast gegn Ísrael er Íran því sjálfkrafa að setja sig í þessa stöðu og seilast til áhrifa á svæðinu. Með þriðjung olíuvinnslu heims við Persaflóa yrði vald ráðandi Íran á heimsvísu ekkert smáræði.
Til að komast í áhrifa hefur Íran gert ýmislegt. Strax eftir að Khomeini komst til valda fór Íran að styðja við Hezbollah í Líbanon. Tilgangur samtakann var sagt vera að verja sjía múslima í Líbanon og frelsa Palestínu. Þetta orðalag er Orwellískt, því það ber með sér að taka eigi yfir Ísraelsríki sem hefur verið til í 77 ár og skipta núverandi þjóð út með Palestínuaröbum sem búa þar ekki í dag. Þetta er þannig dulið loforð um þjóðarmorð í rósamáli. Á hverju ári styðja Íranir Hezbollah um 100 milljarða. Svipaður stuðningur er líka við Hamaz hryðjuverkasamtökin sem eru ekki að fela neitt ásetning sinn og hafa yfirlýsta stefnu í stofnsamþykkt að útrýma gyðingum um allan heim. Með því að fjármagna tvö árástarsamtök við landamæri Ísrael hafa Íranir fundið leið til að færa landamærin sín að landamærum Ísrael.
Eins hafa Íranir stutt Húta í Jemen, sem hafa undanfarna áratugi staðið í stríðsrekstri gegn Sádum og öðrum Súnnítum á svæðinu. Íran er þannig orðið öflugasta herveldi svæðisins.
Þar sem þessi öll þessi hryðjuverkasamtök, Hútar, Hezbollah og Hamas eru fjármögnuð af Íran, þá er þeim líka stýrt af Íran. Útilokað er því annað en að innrás Hamas 7. október hafi líka verið stýrt frá Íran að einhverju leiti. Til marks um það þá hófu Hezbollah og Hútar nánast samtímis árásir á Ísrael líka.
En ef þessi árás er hluti af stórveldisdraumi Íran, má velta fyrir sér hvort þessi árás sé bara til að seilast til áhrifa á svæðinu eða er ástæðan kannski önnur?
Krossferð með kjarnorkusprengjur
Mögulegar liggur enn myrkari tilgangur að baki fjandskap Írönsku klerkanna. Vísbending kom fram í nýlegum ófriði dauðakölt-sins ISIS stóð í Sýrlandi. Barátta ISIS var dómsdagsbarátta með tilvísun í spádóma trúarritninga um dómsdag. Með að ná völdum yfir borgum eins og Dabiq sem fjallað er um í spádómum Hadith (í Kóraninum) töldu þeir sig geta hrundið af stað atburðarás sem yrði til þess að spámaður og leiðtogi múslima Mahdi birtist. Samkvæmt spádómnum mun koma hans sameina alla múslimar og jafnvel tryggja þeim heimsyfirráð.
ISIS voru súnnítar. Í þeim armi íslam er trúin á komu Mahdi almennt ekki jafn sterk. Í shia-trú er trúin á Mahdi hins vegar enn sterkari og hann kallaður 12. spámaðurinn. Hann á að birtast á tímum átaka og margir leiðtogar Írans hafa einmitt kallað á að hann gæti farið að birtast í baráttu þeirra við villitrúarmenn (kristna og gyðinga). Kjarnorkustríð er einmitt verið slíkur dómsdagsviðburður sem gæti orðið til að spádómurinn rætist. Í þessu samhengi er líka mikilvægt að horfa til þess að Íran er klerkaríki, trúarríki sem ekki hefur sést í Evrópu frá tíma krossfaranna. Engin ástæða til að efast um það að ráðamenn í Íran meini ekki það sem þeir segja, um að Mahdi sé að koma. Engin ástæða er heldur til þess að Íran myndi hika við að láta hryðjuverkahópa (Hizbollah, Hamas eða Húta) fá kjarnorkusprengju til að beita gegn Ísrael. Varðandi mögulegt kjarnorkustríð við Ísrael hafa ráðamenn Íran oft verið kokhraustir og t.d. kallað Ísrael einnar sprengju land, með tilvísun í að Ísrael sé svo lítið að ein sprengja myndi duga til að útrýma þjóðinni. Enginn ætti að efast um að írönsku klerkarnir meini það sem þeir segja. Íranska klerkastjórnin er nefnilega líka dauðakölt.
Ástæða árásar Ísraels er sú að þeir höfðu heimildir fyrir því að Íran væri komið með Úraníum í 9 kjarnorkusprengjur og þeir ætluðu að láta sprengjurnar í hendur hryðjuverkahópa. Enn fremur voru þeir að fara að margfalda eldflaugaframleiðslu sína í 10-20.000 flugskeyti á ári. Ísraelar höfðu engan annan kost en að stöðva Írani áður en það var orðið of seint.
Stóri satan næst
Í mótmælum í Íran hefur klerkastjórnin jafnan kallað Ísrael litla Satan og Bandaríkin stóra Satan. Það liggur líka beint við að ef Íran tekst ætlunarverk sitt að útrýma Ísrael, muni það breyta litlu með stjórnarhættina og harðstjórn klerkanna halda áfram. Þá þurfa þeir nýjan óvin og athyglin því beinast að næasta Satan, sem er Bandaríkin eða önnur vesturlönd. Það er erfitt að hugsa þá hugsun til enda hvernig heimurinn það yrði ef hryðjverkahópar verða flestir komnir með atómbombu. Hvernig ætli málfrelsinu muni vegna þá. Mun nokkuð af því frelsi sem við tökum sjálfsögð í dag lengur vera til? Líklega ekki.
Heimurinn hefur þannig ekki efni á því að efast um að klerkastjórnin meini allt sem hún segir. Kjarnorkusprengjuáætunina þeirra verður því að stöðvar. Ef Ísraelum tekst að fella klerkastjórnina núna, og frelsa íranska þjóð undan oki þeirra, gæti staðan í miðausturlöndum gjörbreyst, því hryðjuverkahópar Hamas, Hezbolla og Húta munu fljótt missa flugið þegar allur fjárstuðningur þverr og þeir þurfa að gera ódæðisverk sín á eigin kostnað.
English:
The Nuclear Bomb Crusaders
The path to understanding the world begins with a question. The question that must be asked to understand the war between Iran and Israel is simple: WHY?
Why is Iran at war with Israel? Its not due to border disputes, as the two countries do not share a border. What about historical reasons? No, not that either, because Iranians (Persians) have always held a special place in the minds of Israelis. When the ancient Persian Empire conquered the Middle East, they allowed the Jews to return to their homeland (now Israel) after the Assyrians had scattered them and forcibly deported them. The existence of the state of Israel today is, to some extent, thanks to this benevolent act by the Persians.
Its also strange that Iran supports Palestinian Arabs, who are Sunnis, while Iranians are Shias. Sunnis and Shias have been fighting bitterly in this region for decades and hate each other. In Iraq, the Sunni Saddam Hussein oppressed Shias, and in the Iran-Iraq War between Sunnis and Shias, a million people died. This hatred continued after the Iraq War. In the Syrian Civil War between Shias and Sunnis, half a million people died, and in Lebanons civil war, 1020 thousand people died in conflicts between Sunnis and Shias. In this region, goodwill between these religious groups is in short supply. Why the hell would Iran, then, want to sacrifice everything to defend its archenemies?
The Imperial Dream of Irans Clerics
One explanation for Irans hostility can be found in Orwells 1984. It always helps dictators justify their oppression of their own people by pointing to an external threat. Similarly, nothing is as powerful for uniting disparate groups as a struggle against a common enemy. The one who leads such a struggle automatically assumes a leadership role among those who support it. By attacking Israel, Iran is thus positioning itself in this role and reaching for influence in the region. With a third of the worlds oil production in the Persian Gulf, the power of a dominant Iran on the global stage would be no small matter.
To gain influence, Iran has done various things. Immediately after Khomeini came to power, Iran began supporting Hezbollah in Lebanon. The stated purpose of the organization was to protect Shia Muslims in Lebanon and liberate Palestine. This language is Orwellian, as it implies taking over the state of Israel, which has existed for 77 years, and replacing its current population with Palestinian Arabs who do not live there today. This is thus a veiled promise of genocide cloaked in rosy rhetoric. Every year, Iran supports Hezbollah with about 100 billion ISK. Similar support is also given to the Hamas terrorist organization, which does not hide its intentions and has a stated policy in its founding charter to exterminate Jews worldwide. By funding two aggressive organizations on Israels borders, Iran has found a way to extend its borders to Israels.
Iran has also supported the Houthis in Yemen, who have been engaged in warfare against Saudis and other Sunnis in the region for decades. Iran has thus become the most powerful military force in the region.
Since all these terrorist organizationsHouthis, Hezbollah, and Hamasare funded by Iran, they are also controlled by Iran. It is therefore impossible to believe that Hamass invasion on October 7 was not, to some extent, directed by Iran. As evidence, Hezbollah and the Houthis began attacks on Israel almost simultaneously.
But if this attack is part of Irans imperial dream, one might wonder whether it is merely about gaining regional influence or if there is another reason.
The Nuclear Bomb Crusaders
Its possible that an even darker purpose lies behind the hostility of Irans clerics. A clue emerged during the recent unrest when the death cult ISIS was active in Syria. ISISs struggle was an apocalyptic battle referencing religious prophecies about the Day of Judgment. By seizing cities like Dabiq, mentioned in the Hadith prophecies (in the Quran), they believed they could trigger a chain of events that would lead to the appearance of the Mahdi, a prophet and leader of all Muslims. According to the prophecy, his coming will unite all Muslims and even ensure their world domination.
ISIS were Sunnis. In that branch of Islam, belief in the Mahdis coming is generally not as strong. In Shia Islam, however, faith in the Mahdi is even stronger, and he is called the 12th Imam. He is expected to appear during times of conflict, and many Iranian leaders have indeed called for his appearance in their struggle against infidels (Christians and Jews). A nuclear war could be precisely the kind of apocalyptic event that would fulfill this prophecy. In this context, its also important to note that Iran is a theocracy, a religious state unseen in Europe since the time of the Crusades. There is no reason to doubt that Irans leaders mean what they say about the Mahdis coming. Nor is there any reason to believe Iran would hesitate to provide terrorist groups (Hezbollah, Hamas, or Houthis) with a nuclear bomb to use against Israel. Regarding a potential nuclear war with Israel, Iranian leaders have often been brazen, for example, calling Israel a one-bomb country, implying that Israel is so small that a single bomb would suffice to annihilate the nation. No one should doubt that Irans clerics mean what they say. Irans clerical regime is, after all, a death cult.
The reason for Israel's attack is that they had intelligence indicating that Iran had acquired uranium for 9 nuclear bombs and intended to hand these bombs over to terrorist groups. Furthermore, they were planning to increase their missile production to 1020,000 missiles per year. Israel had no choice but to stop Iran before it was too late.
The Great Satan Next
In protests in Iran, the clerical regime has consistently called Israel the Little Satan and the United States the Great Satan. It follows that if Iran succeeds in its goal of annihilating Israel, it will change little about the regimes governance, and the clerics dictatorship will continue. They will then need a new enemy, and attention will turn to the next Satan, which is the United States or other Western countries. Its hard to imagine what the world would look like if most terrorist groups had access to nuclear bombs. How would freedom of speech fare then? Would any of the freedoms we take for granted today still exist? Probably not.
The world cannot afford to doubt that the clerical regime means everything it says. Their nuclear bomb program must therefore be stopped. If Israel manages to topple the clerical regime now and liberate the Iranian people from their yoke, the situation in the Middle East could change dramatically. Terrorist groups like Hamas, Hezbollah, and Houthis would quickly lose momentum when all financial support dries up, and they have to carry out their atrocities at their own expense.
Um bloggið
Jóhannes Loftsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 18
- Sl. sólarhring: 195
- Sl. viku: 1051
- Frá upphafi: 64692
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 941
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hélt að þessi pistill væri um kjarnorkuveldið Ísrael, nei um verðandi kjarnorkuveldið Íran.
Íranir eru vissulega öðruvísi en Vesturlönd. Þessi pistill er skrifaður af kristilegum trúarmóð og því margt sem mætti benda á.
Hver trúir því að ef Íran verði kjarnorkuveldi muni það henda eins og einni eða fleiri kjarnorkusprengjum á Ísrael? Hver er svo vitlaus að gera það? Fyrir það fyrsta myndi geislavirknin einnig ná til Írans, það væri sjálfskaparvíti. Í öðru lagi er spurning með loftvarnir, og hvort það myndi ekki enda með eyðingu Írans áður en slík árás myndi eyða Ísrael? Á örskotsstundu myndu jafnvel Bandaríkin - sem alltaf fylgjast með - vera búin að senda einhverskonar sprengjur til að granda Íran - og kannski ekki einusinni kjarnorkuvopn, sem fara nú senn að verða 100% úrelt með aukinni tækni.
Kjarnorkuvopn eru eins og sljótt barefli fyrir steinaldarfólk. Samt hræða þau og það er málið.
Nei, það sem Íran vill með kjarnorkuáætlun sinni er að BREYTA VALDAHLUTFÖLLUM Arabaheiminum í vil. Annað meikar ekki nokkurn minnsta sens.
Ég get skilið að Ísraelar vilji stöðva kjarnorkuáætlun Írans í fæðingu. Helzt vildi ég að engin þjóð ætti kjarnorku. En eins og til dæmis Einar Björn benti á í nýlegu bloggi, það er langt frá því að hægt sé auðveldlega að hindra Írana og gæti virkað öfugt. Jafnvel ef Bandaríkin ætla að blandast inní með sínum eldflaugum og útrýma vel völdum skotmörkum, þá er dæmið ekki búið, heimurinn er gagnvirkur og margvirkur og þú færð ekki 100% niðurstöðu þótt þú eigir peninga og ætlir að ná þeirri niðurstöðu.
Arabaheimurinn er flókinn og voldugur, og stuðningsfólkið er einnig utan hans.
Annars er þetta að einhverju leyti rétt hjá þér. Hatrið á milli Ísraels og Írans er svo mikið og rótgróið að meiri hætta er á brjálæði og notkun gereyðingarvopna.
En friðarsamningar skila alltaf betri árangri. Er Netanyahu með þessu að koma í veg fyrir frið og samninga eins og Einar Björn skrifaði um? Þá er hann hættulegri en einræðisherrar múslimaheimsins, Saddam Hussein eða Gaddafi.
Harðstjórn og einræði er víðar en í múslimaríkjunum. Netanyahu er MJÖG umdeildur í sínu landi, og slíkir menn ráðast frekar á önnur lönd til að fela eigin óvinsældir. Trump vinur hans er einnig talinn einræðisherra af mörgum.
Ingólfur Sigurðsson, 18.6.2025 kl. 20:55
Það var svo sem ekkert kristilegt í þessun nema titillinn, þar sem ég var að benda á kalhæðni þess að Múslimaríki væri orðið að krossfararíki. Hvernig sagan hefur snúist á haus. Já arabaheimurinn er öðru vísi, en það breytir ekki því að klerkastjórn Íran er með sömu stefnu og Isis... og þú vilt að hvorugur fái kjarnorkuvopn. Þá mun heimurinn aldrei verða samur. Auðvitað mun Íran fyrst halda áfram sömu aðferð og áður og láta hryðjuverkahópana fá vöpnin svo hefndin beinist ekki að þeim. Eins má búast við að fleiri persaflóalönd muni líka fá sér sprengju af ótta við íran (t.d. saudar)... sprengjurnar munu því fljótt fara út um allt. Kjarnorkustríð yrði óumflýjanlegt, og ofsatrúarfólki er sama, því þau trúa á að guð sé með þeim. það er vandinn.
Varðandi að það gæti virkað öfugt að ætla að stöðva írana, þá er það auðvitað rangt. Þetta hefur verið gert áður (t.d. við Írak og sýrland). Íranir eru á fullri ferða að reyna að búa til bombu, og ekkert sem vesturveldin geta sagt getur stöðvað þá. Aðeins er hægt að stöðva þá með eyðileggja allt sem þeir hafa gert.
Hvað varðar harðstjórn Netanyahu, þá er ég enginn aðdándi hans vegna framgöngu hans í kófinu, en það sem er í gangi nú kemur ekki frá honum. Öll ísraelska þjóðin skilur nauðsyn þess að bregðast við meðan það er hægt. Sumir íslendingar eru þó ekki að átta sig á hvað raunverulega er í gangi þökk sé íslenskum falsfréttamiðlum, sem eru eindæma einfeldningar þegar kemur að öllu sem viðkemur heimsmálum.
Jóhannes Loftsson, 18.6.2025 kl. 21:26
Þakka þér fyrir þessar útskýringar. Þú sannfærir mig betur en flestir sem um þetta hafa skrifað eða rætt. Stundum er jú valdbeiting neyðarráðið. En ég efast þó enn um að þetta stöðvi Írani. Get þó fallizt á að þetta tefji þá og það er gálgafrestur sem er dýrmætur fyrir heimsbyggðina. Já, vel má vera að þetta sé skárri kostur, það kemur í ljós. Það sem Gorbashev og Reagan gerðu í Höfða tel ég þó einu lausnina til lengdar, afvopnun. En þessi rök vega þungt og sannfæra mig sæmilega. Kjarnorkustríð hefur lengi vofað yfir. Nauðsyn á afvopnun er meiri og útrýmingu kjarnorkuvopna en var 1986.
Takk fyrir, þetta er eins vel rökstutt og hægt er miðað við aðstæður held ég.
Ingólfur Sigurðsson, 18.6.2025 kl. 22:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning