Um meint friðsamleg mótmæli Rúv og vísis í LA

Hún er vægast sagt alveg kostuleg umfjöllunin sem Íslendingum hefur verið boðin af íslensku “meginstraumsmiðlunum” um mótmælin í Los Angeles.

 

Í þessari frétt hér gleymir vísir að fjalla um sjálf mótmælin og hvað mótmælendur gerðu en kallar allar aðgerðir til að stöðva mótmælin “fasískar leikaðferðir”.  Tilfinningaklámið er síðan sett á enn hærra stig með viðtali við íslending sem þarna býr og óttast að hún sjálf eða einhver í fjölskyldu hennar verði handtekinn! …. Hvað er í gangi.  Er hún þá ólöglegur innflytjandi líka?  Veit vísir ekki að fólk sem ekki brýtur lög er ekki handtekið?

Fréttin heldur síðan áfram og kallar aðgerðir Trump að kalla til heimavarnarliðið lögbrot, en sleppir þó að taka fram að heimavarnarliðið var í upphafi bara kallað til til að verja eigur ríkisins og starfsemi, sem ICE er hluti af.

 

Rúv birti líka frétt um þessa lagasamsæriskenningu öfga demókrata, án þess að nefna af hvejru þjóðvarðliðarnir voru kallaðir til.  Til að ýta enn undir hneykslun þeirra Íslendinga sem trúa þessum ruslmiðlum er svo haldið áfram með áróðurinn og vitnað í ummæli eins fulltrúardeildarþingmanns demókrata sem vitnar máli sínu til stuðnings að þjóðvarnarliðið hafi ekki einu sinni verið kallað til þegar 6. janúarmótmælin voru við embættistöku Biden þar sem mótmælendur fóru inn í þinghúsið.  Þessi yfirlýsing er hins vegar lygi, því þjóðvarðliðarnir voru einmitt kallaðir til eftir að mótmælendur fóru inn. Trump hafði látið þá vera “stand by” og boðið þinghúsinu til varnar.  En þingmenn demókrata höfðu hafnað þeirri vernd.  

 

Það myndi ekki koma mér á óvart ef báðir þessir ruslmiðlar væru á styrktarlista Soros og USAID til að tryggja “rétta” umfjöllun.

 

En alla vega.  Hér eru nokkrar myndir úr þessum “friðsælu” mótmælum.

la1

 

Friðsamur sótthræddur mótmælandi að taka mynd af löggubíl

la2

Fjölmenningarsinnar frá nágrannaríkinu að tala gegn rasisma

 

la3

Friðsamur mótmælandi að prófa nýja hjólið sitt

 

la4

Einn að vekja athygli á hvað ólöglegir mexíkóskir innflytjendur eru mikilvægir þátttakendur í samfélaginu.

 

 

la5

Múrsteinabretti sem einhver forsjár mótmælandi lét dreifa um allar götur los angeles fyrir mótmælin.  (Ekkert að sjá hér).

 

Til að gefa Íslendingum smá innsýn í geggjunina sem er í gangi í bandaríkjunum þá má gera smá tðlfræðileik, og pró-rata bandarískar tölur yfir á Íslandi.   Ef ísland væri bandaríkin væru hér um 20 þúsund ólöglegir innflytjendur sem borguðu ekki skatta en kostuðu aðra skattgreiðendur um milljón á ári hver.  Þetta fólk hefði ekki kennitölu og né löglegt ökuskýrteini og borgaði því ekki skyldutryggingu af ökutækjum.  Ef þú myndir lenda í árekstri við þau, er hætt við að þau einfaldlega keyrðu í burtu.  Það borgar sig því að vera í kaskó.  Mikil glæpatíðni, aukin eyturlyfjavandamál, kynlífsþrælkun og alls konar fylgir eðlilega því ekkert bakgrunns-tékk gert á ólöglega innflytjendur. ... o.s. frv.  það má lengi halda áfram. Nokkuð auglóst er að sérhver þjóð sem vill kalla sig þjóð myndi alltaf þurfa að bregðast við slíkri innrás  Það er því engin tilviljun að aðgerðir Trump njóta mikils stuðnings bandaríkjamanna sem flestum finnst nóg komið.  Rúv og vísir virðast þó ekki hafa séð það minnisblað. 

 

English

Conserning the alleged peaceful protests in Los Angeles according to RÚV and Vísir
 
The coverage offered to Icelanders by the Icelandic “mainstream media” about the protests in Los Angeles is, to put it mildly, utterly ridiculous.
In this news article, Vísir forgets to cover the protests themselves and what the protesters did, but labels all actions to stop the protests as “fascist tactics.” The emotional manipulation is then taken to an even higher level with an interview with an Icelander living there who fears that she or someone in her family might be arrested! … What’s going on? Is she an illegal immigrant too? Doesn’t Vísir know that people who don’t break the law aren’t arrested?
The article continues by calling Trump’s actions to deploy the National Guard a violation of the law, but conveniently omits that the National Guard was initially called in only to protect government property and operations, which ICE is a part of.
RÚV also published a story about this legal conspiracy theory of radical Democrats, without mentioning why the National Guard was deployed. To further fuel the outrage of Icelanders who believe these trash media outlets, the propaganda continues by quoting a Democratic congressman who, in support of his case, claims the National Guard wasn’t even called in during the January 6 protests at Biden’s inauguration when protesters entered the Capitol. This statement, however, is a lie, as the National Guard was indeed called in after the protesters entered. Trump had put them on “standby” and offered protection to the Capitol, but Democratic lawmakers had rejected that protection.
It wouldn’t surprise me if both of these trash media outlets were on the payroll of Soros and USAID to ensure “correct” coverage.
Anyway, here are some pictures from these “peaceful” protests.
 
Figure 1
A peaceful, soot-covered protester taking a picture of a police car.
 
Figure 2
Multiculturalists from the neighboring state speaking out against racism.
 
Figure 3
A peaceful protester trying out their new bike.
 
Figure 4
One protester drawing attention to how important illegal Mexican immigrants are to society.
 
Figure 5
Pallets of bricks that some foresighted protester distributed across the streets of Los Angeles before the protests. (Nothing to see here).
 
 
To give Icelanders a glimpse into the madness happening in the U.S., let’s do a little statistical exercise and pro-rate U.S. numbers to Iceland. If Iceland were the U.S., there would be about 20,000 illegal immigrants here who don’t pay taxes but cost other taxpayers about a million per year each. These people would have no social security number or legal driver’s license and thus wouldn’t pay mandatory vehicle insurance. If you got into an accident with them, they’d likely just drive away. It pays to have full coverage insurance. High crime rates, increased drug problems, sex trafficking, and so on naturally follow since no background checks are done on illegal immigrants. … And so on, the list could go on. It’s pretty obvious that any nation that wants to call itself a nation would always need to respond to such an invasion. It’s therefore no coincidence that Trump’s actions enjoy significant support from Americans, most of whom think enough is enough. RÚV and Vísir, however, seem to have missed that memo.

 

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Takk fyrir Jóhannes að færa okkur réttar fréttir,ég var samt nokkuð viss að fréttir þaðan væru ýktar með ósannindum og yrði leiðrétt eins og þú gerir hér,en þá oft löngu seinna og skaðar meira.Annars fer almenningur að gera ráö fyrir(vona)að ef hallar á þann sem er öfundaður og almenningur dáir fyrir að safna allri frónskri drótt,er hann æruverður.

Helga Kristjánsdóttir, 11.6.2025 kl. 01:16

2 Smámynd: Júlíus Valsson

Það er greinilegt að mótmælendum í Kaliforníu er ekki umhugsað um hamfarahlýnun núna, af myndunum að dæma. 

Júlíus Valsson, 11.6.2025 kl. 14:12

3 Smámynd: Arnar Freyr Reynisson

Þetta er hreint út sagt magnaður fréttaflutningur hjá þessum miðlum. Allt látið snúast um að Trump sé vondur og ætlar sér einræði.

Arnar Freyr Reynisson, 11.6.2025 kl. 15:13

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

RUV telur líka að allt sem vellur upp úr Gavin Newsom ríkisstjóra sé heilagur sannleikur

þegar staðreyndin er að hann er bara að reyna gera sig gildandi til koma til greina sem forsetaframbjóðandi fyrir demókrata 2028

Annars skil ég ekki þennan mexíkóska fána sem allir "mótmælendur" virðast vera með

Eru þeir að gera kröfu um að Kalifornía sameinist Mexíkó 

Grímur Kjartansson, 11.6.2025 kl. 18:32

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Rétt eins og BLM óeirðirnar, þá eru þessir óeirðaseggir fjármagnaðir af bakhjörlum demókrata sem senda þeim múrsteinabrettin. Demókratar hafa misst svo mikið fylgi vegna alls klúðursins í kringum forsetakosningarnar, lagaklækja réttarhaldanna á hendur Trump og J6 dómanna yfir saklausu fólki, að þeir þurfa að blása lífi í glæðurnar. Það telja þeir best gert með skrílslátum.

Ragnhildur Kolka, 12.6.2025 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og núlli?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Jóhannes Loftsson

Höfundur

Jóhannes Loftsson
Jóhannes Loftsson

Höfundur er verkfræðingur, frumkvöðull, formaður Frjálshyggjufélagsins og Ábyrgrar Framtíðar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • la5
  • la4
  • la3
  • la2
  • la1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 61
  • Sl. sólarhring: 627
  • Sl. viku: 1557
  • Frá upphafi: 63445

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 1440
  • Gestir í dag: 53
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband