8.2.2025 | 22:45
Nothæfisstuðullinn er orðinn 70% á Reykjavíkurflugvelli
Með lokun næstsíðustu flugbrautar Reykjavíkurflugvallar nothæfisstuðullinn nú hruni í 70%. Hann á að vera a.m.k. 95%. Þetta þýðir að þriðja hvert sjúkraflug verður við hættulegri skilyrði. Þetta er 6 falt yfir leyfileg mörk!
Þriðja hvert sjúkraflug þarf nú að meta hvort þorandi sé að senda sjúklinginn suður. Ef það er flogið þarf flugmaðurinn að meta áhættuna, hvort þorandi sé að lenda, hvort hægt sé að lenda í keflavík eða hvort það þurfi að snúa við. Afleiðingin er verulega skert heilbrigðisþjónusta landsbyggðarinnar.
Sjö bráðasjúklingar munu ekki komast suður næstu þrjá mánuði
Áður en neyðarbrautinni var lokað og þrjár flugbrautir voru á Reykjavíkurflugvelli komust allir bráðasjúklingar suður. Veruleg breyting varð við að flugbrautirnar urðu tvær og má ætla m.v. reynslu flugmanns að um 10 bráðasjúklingar komist ekki suður á hverju ári. Eftir fækkun flugbrautanna var nothæfisstuðullin fyrir sjúkraflug fallinn í 88,5% miðað við 10 hnúta hliðarvind. (Þessi nothæfisstuðull fyrir sjúkraflug var þó aldrei reiknaður fyrir lokun neyðarbrautarinnar sem var brot á reglugerð )
Þar sem stuðullinn nú kominn niður í 70% jafngildir það 2,6 faldri aukningu aðstæðna sem uppfylla ekki nothæfis lágmark. Fyrirhuguð þriggja mánaða lokun næstsíðustu brautarinnar mun því hafa í för með sér að 7 sjúklingar komast ekki til læknir í Reykajvík.
Þetta er óásættanlegt því þetta mun líklega kosta mannslíf.
Ófagleg vinnubrögð yfirvalda
Hvernig stendur á því að farið er í slíka lokun án þess að meta einu sinni hvaða áhrif lokunin hefur. Af hverju reikna rekstraraðilar flugvallarins ekki nothæfisstuðulinn?
Stóra vandamálið við rekstur Reykjavíkurflugvallar er pólitískir stjórnarhættir virðast hafa tekið yfir reksturinn á kostnað faglegrar nálgunar. Fyrir vikið þorir rekstraraðilinn ekki að skoða nothæfisstuðul flugvallarins, þorir ekki að þrýsta almennilega á að tréin í Öskjuhlíð séu felld og þorir ekki að fylgjast með því hversu margir sjúklingar af landsbyggðinni deyja eða missa heilsuna eftir að hafa ekki komist í sjúkraflug. Í pólitík skiptir mestu máli að troða ekki á neinum tám sem gætu snúist gegn þér og ef vandamál er til staðar er alltaf farsælast að láta sem það sé ekki til.
En svona nálgun gengur ekki lengur. Það er löngu orðið tímabært að rekstraraðilar Reykjavíkurflugvallar farið að mæla rekstraröryggi flugvallarins þ.a. hægt sé að taka á þeim vandamálum sem eru til staðar með upplýstum ákvörðunum.
Þar eru tréin í Öskjulhlíð sem þarf að fella bara toppurinn á ísjakanum.
Lokun neyðarbrautarinnar
Lokun neyðarbrautarinnar byggði á útreikningum sem brutu íslenska reglugerð. Skýrt er að reikna þarf nothæfisstuðul fyrir allar flugvélar sem flugvellinum er ætlað að þjóna, sem þýðir að aldrei mátti sleppa að reikna nothæfisstuðul fyrir sjúkraflug eins og gert var. Hefðu slíkir útreikingar verið gerðir hefði legið ljóst fyrir að lokun neyðarbrautarinnar gengi aldrei.
Margt annað var líka gert til að fegra stöðuna: Ekki var tekið tillit til brautarskilyrða (eins og hálku) og handvalin voru mælisería af veðursælasta tímabili í sögu flugvallarins. Þetta varaði ég við í fjölda greina á þessum tíma og benti á að nýjustu rannsóknir sýndu að tíðni storma væri aftur að fara upp. Það hefur svo komið á daginn.
Nýju veðurgögnin
Á kynningu vegna skipulags Skerjafjarða landsins fyrir tveimur árum kom í ljós að nyjum veðurgögnum hefði verið safnað af flugvellinum. Enginn hafði þó enn skoðað þau. Þetta vakti mikinn áhuga minn og í framhaldinu fékk ég afhend yfirfarin göng frá veðurstofunni og ákvað að reikna nothæfisstuðulinn sjálfur. Niðurstaðan var sláandi. Flugvöllurinn stóðs ekki lengur lágmarksviðmiðið, meira að segja fyrir stærri áætlana-flugvélarnar. Þessa niðurstöðu kynnti ég í nýlegri moggagrein.
Gögnin sem þessir útreikningar byggðu á eru gríðarlega vönduð. Mælingar eru skráðar á 15 sekúntna fresti í 4 brautarenda-veðurmælum. Við útreikninga notaði ég 10 mínútna meðaltölum frá tímabili sem spannaði 11 ár: 2012-2023. Heildarfjöldimælinga yfir þennan tíma var um 500.000 línur fyrir hvern mæli. Til að einfalda útreikinga sleppti ég þó að taka tillit til brautarskilyrða og skýjahæðar, því það hefði kallað á meiri upplýsingaöflun og greiningarvinnu. Fyrir vikið er innbyggt ofmat í þessum útreikingum útreikningarnir nothæfisstuðullinn og raunverulegur nothæfisstuðull er því aðeins lægri (verrri) en sá sem ég reikna út. En þar sem nothæfisstuðullinn sem ég fæ er í flestum tilfellum langt undir lágmarksgildinu, undirstrika útreikningarnir að flugvöllurinn stóðst ekki kröfur eftir að neyðarbrautinni var lokað. Niðurstaðan er því mjög áreiðanleg og merkið er skýrt: Flugvöllurinn var fallinn.
Hafi einhverjir aðrir áhuga að gera sambærilega eða jafnvel ítarlegri útreikninga þá er þeim velkomið að skoða þessi veðurgögn.
Hvað er til ráða
Ljóst er að forsenda samkomulags ríkis og borgar um Reykjavíkurflugvöll er löngu brostið, því rekstaröryggi flugvallarins hefur aldrei verið til staðar síðan neyðarbrautinni var lokað. Ekkert nýtt flugvallarstæði er á næstu grösum þannig að það þarf að bregðast við aðkallandi vanda strax. Ef ekki er hægt að fella þessi tré í næstu viku, þyrftu yfirvöld að fara í neyðaraðgerðir (t.d. neyðarlög) til að brautin opni strax.
Í framhaldinu þarf svo að eiga sér stað heiðarleg rýni á stöðu máli. Fara þarf í ýtarlega könnun á stöðu heilbrigðismála og hve oft sjúklingi sem þyrfti að fara suður er snúið við og leggja þyrfti mat á þeim skaða sem þetta veldur. Eins þarf að fara fram raunveruleg ópólitísk mat á nothæfisstuðli Reykjavíkjurflugvallar þar sem allir útreikningar verða birtir og uppi á borðinu. Yfirvöld þurfa að fara að horfast í augun á því skemmdarverki sem þegar hefur verið unnið á flugvellinum. Aðeins þegar menn eru farnir að horfast í augun við sannleikann er hægt að bregðast við. Það er hægt að bregðast við og það er hægt að bjarga reykjavíkurflugvelli. En það mun aldrei gerast hjá þeim sem vilja lifa áfram í þeirri blekkingu sem nú er í gangi.
(hér má sjá eina tillögu sem ég lagði fram á sínum tíma til að bjarga flugvellinum í fyrra horf)
Um bloggið
Jóhannes Loftsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 193
- Sl. sólarhring: 212
- Sl. viku: 1018
- Frá upphafi: 62125
Annað
- Innlit í dag: 183
- Innlit sl. viku: 936
- Gestir í dag: 177
- IP-tölur í dag: 177
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er alveg hægt að fella þessi tré, ekkert mál það.
Vandinn er að borgarstjónin vill það ekki. Það lið vill völlinn burt. Það á að reisa eitthvert gettó þar.
Það sem þarf til að redda málum er að henda þessu liði út í ystu myrkur, og fá í staðinn fólk sem hefur hag landsmanna að leiðarljósi.
Ekki fólk sem er auðvelt að finna, veit ég.
Ásgrímur Hartmannsson, 9.2.2025 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.