Ábyrg framtíð býður alla nýja þingmenn velkomna

Í ljósi nýlegra viðburða vill Ábyrg Framtíð koma því á framfæri til þingmanna sem brátt þurfa að leita að nýjum flokki eftir að gamli flokkurinn er orðinn gjaldþrota, að Ábyrg Framtíð tekur við öllum opnum örmum.  Öfugt við flokka sem nú eru á þingi er fjárhagsstaða Ábyrgrar Framtíðar góð því flokkurinn hefur aldrei þegið neina ríkisstyrki og skuldar því ekki krónu.

Við setjum þó það skilyrði að okkar þingmenn séu ábyrgir og vilji að yfirvöld séu líka ábyrg.  

... og svo erum við með stutt inntökupróf

Í fyrri hluta prófsins er lestrarkunnátta þingmanna könnuð með sérstakri áherslu á lesskilning [svo þeir skilji lögin sem þeir samþykkja]

Seinni hluti prófsins er svo dómgreindarkrossapróf. Dæmi um spurningar sem þingmenn gætu þurft að svara eru: 

  • Ef barnabarn þitt týnir skó í skólanum hvað gerir þú þá?
    1. Skiptir þér ekki að og lætur foreldra barnsins taka á því.
    2. Hringir í skólastjórann og hótar honum nema hann finni skóinn.
  • Ef úrskurður dómstóla er þér ekki að skapi, hvað gerir þú þá?
    1. Hringir í ríkislögreglustjóra um miðja nótt og heimtar að hann framfylgi ekki dómnum og hótar samráðherrum stjórnarslitum.
    2. Unir dómnum.

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og fjórum?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Jóhannes Loftsson

Höfundur

Jóhannes Loftsson
Jóhannes Loftsson

Höfundur er verkfræðingur, frumkvöðull, formaður Frjálshyggjufélagsins og Ábyrgar Framtíðar

Bloggvinir

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Aukin tíðni einhverfu með fleiri bólusetningum
  • sparnaðartillögur 1-7
  • sparnaðartillögur 1-7
  • sparnaðartillögur 1-7
  • sparnaðartillögur 1-7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 65
  • Sl. sólarhring: 146
  • Sl. viku: 3428
  • Frá upphafi: 6481

Annað

  • Innlit í dag: 59
  • Innlit sl. viku: 3078
  • Gestir í dag: 59
  • IP-tölur í dag: 57

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband