22.6.2025 | 11:22
Stríð og stærsta olíukreppa allra tíma
Hér eru nokkrir slagarar frá ráðamönnum Íran gegnum tíðina
Ayatollah Ali Khamenei (Æðsti klerkur og æðsti leiðtogi): Ísrael verður ekki til eftir 25 ár (2015&2023)
Akbar Hashemi Rafsanjani (forseti Íran 1989-2005): Ein kjarnorkusprengja í Ísrael mun brenna allt ríkið upp til agna
Mahmoud Ahmadinejad (forseti Íran 2005-2013): Stjórn zionista verður bráðum þurrkuð út (helfararafneitararáðstefna 2006) og talaði margoft einnig um að eyða Ísrael.
Á sama tíma og Íran sagðist vera með friðsamlega kjarnorkuáætlun, földu þeir úranauðgun sína neðanjarðar í sprengjuheldum birgjum og bönnuðu kjarnorkueftirlitinu að skoða þá staði. Alþjóðlegu eftirlitsaðilarnir hafa fram til þessa lítið þóst taka eftir þessu og látið sér nægja að skoða bara það sem Írönsk stjórnvöld leyfðu þeim að skoða. Þetta er algjört djók, og yfirvöld Evrópuríkja hafa augljóslega ákveðið að blekkja almenning með slíku gervi eftirliti með gervikjarnorkuþróunarsamkomulagi.
Kjarnorkuvopnaþróun Íran er ekki það eina sem hefur tekið stökk síðustu 5 árin, því eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst gerðu Rússar framleiðslusamkomulag við það og eldflauga framleiðslan hefur meira en tvöfaldast. (var 700 flugskeyti á ári 2024).
Þegar forseti Ísrael skýrði af hverju Ísrael hafi þurft að bregðast við, sagði hann að Íran stefndu í að framleiða allt að 4000 flugskeyti á ári í ár og 20000 flugskeyti á ári eftir 6 ár. Enn fremur sagði hann að Íran væri þegar komnir með nægjanlegt auðgað Úran til að framleiða 9 kjarnorkusprengjur. Ísrael er ekki eini aðilinn sem stendur ógn af Íran, því Íran m.a. gegnum Houta hafa t.d. verið gerðar endurteknar flugskeytaárásir á olíuvinnslustöðvar í Saudi Arabíu. Eftir nokkur ár verður enginn möguleiki fyrir Sáda að verja olíuframleiðsluna. Tilvist Sádí Arabíu eru þannig beinlínis ógnað af þessari hernaðaruppbyggingu Íran.
Á sama tíma og Íran er í dag komið á fulla ferð að undirbúa sig undir þriðju heimsstyrjöldina, stendur Íran þó óvenju veikt því allir bandamennirnir eru horfnir. Hamas er í molum, Hezbollah er í molum og Sýrlandsstjórn er fallin og Rússar eru uppteknir af eigin málum. Íran stendur því einangraðra en nokkru sinni fyrr.
En Íran er þó áfram stórhættulegt. Þeir eiga enn allt að 1500 langdræg flugskeyti, og fullt af skammdrægum flugskeytum. Það er nóg til að sprengja allar herstöðvar bandaríkjamanna á svæðinu sem og herskip og rústa olíuframleiðslu heimsins. Eins er auðvelt fyrir Íran stöðva alla skipaflutninga úr persaflóa.
Með þátttöku Bandaríkjanna í Íranstríðunu er ljóst að nú er byrjuð að spilast atburðarás sem gæti stigmagnað átökin og þriðjungur olíuframleiðslu heimsins er í hættu.
Skipulögð atburðarás
Inngrip Trump ættu þó ekki að koma neinum á óvart, því hann hefur alltaf sagt að Íran megi ekki fá kjarnorkuvopn. Líklegt verður að telja að Bandaríkin hafi komið að undirbúningi þessara aðgerða í langan tím. 60 daga fresturinn sem Trump gaf Íran til að hætta kjarnorkuvopnakapphlaupi sínu var líklega bara til sýnis, því engar líkur voru á því að Íran myndi bregðast við því. Bandaríkin hafa því líklega verið að undirbúa sig undir átök á svæðinu síðan Trump komst til valda. Nýlegt bandalag Trump við öll helstu olíuríkin (sem stendur mikil ógn af Íran) eru dæmi þar um. Ísrael, Bandaríkin og olíuríkin eru því þegar að vinna saman, en þátttaka olíuríkjanna er ekki opinber til að forða þeim frá að varða skotmörk Írans.
Upphafleg árás Ísrael á Íran var þannig bara hluti af stærri aðgerð. Rökrétt var að Ísrael hæfi fyrst aðgerðinar, því þeir eru með bestu loftvarnirnar og gætu þannig tekið mesta bitið úr flugskeytaógn Írana. Nú eru þessar varnir farnar að veikjast, og bandaríkin því byrjuð að spila sinn fyrsta leik.
En hvað gerist næst?
Næsta fyrirmyndin er Írakstríðið. Það tók Bandaríkjamenn ekki nema ca. 20 daga að eyða allri skipulagðri andspyrnu. Bandaríkin eru viðbúin, þ.a. viðbúið er að árásir á Íran muni fljótlega margfaldast. Bandaríkin eru í keppni við tímann. Þeir þurfa að taka bitið úr Íran áður en flugskeyti þeirra valda of miklum skaða og áður en óafturkræf olíukreppa verður.
Pólitík kann þó að spila inn í og hugsanlega munu þeir leyfa Íran að eiga næsta leik áður en þeir fara inn af fullum krafti.
Litlar líkur verða þó að teljast að Íran breyti um kúrs úr því sem komið er.
Á næstu dögum má því búast við verulegri aukningu aðgerða gegn Íran sem munu ekki lengur takmarkast við kjarnorkuframleiðslu Írana, heldur öllum hernaðar innviðum Írans. Mögulega mun þessu ekki ljúka fyrr en klerkastjórnin fellur.
Að lokum
Að lokum verður að hafa í huga, að þegar kemur að alþjóðahagkerfinu er Ísland ekki eyland. Olíukreppa og ófriðarástand mun bíta okkar efnahag jafnvel enn verr en aðrar þjóðir. Þetta þurfa Íslendingar og íslensk yfirvöld að hafa í huga og byrja að undirbúa sig undir það sem koma skal.
English translation:
War and largest oil crisis af all times
Here are some notable quotes from Iranian leaders over time:
Ayatollah Ali Khamenei (Supreme Leader): Israel will not exist in 25 years (2015 & 2023)
Akbar Hashemi Rafsanjani (President of Iran 19892005): One nuclear bomb in Israel "will annihilate the entire country"
Mahmoud Ahmadinejad (President of Iran 20052013): The Zionist regime will soon be wiped out (Holocaust denial conference 2006) and repeatedly spoke about destroying Israel.
While Iran claimed to have a peaceful nuclear program, they hid their uranium enrichment underground in blast-proof bunkers and barred nuclear inspectors from accessing those sites. International inspectors have, until now, largely ignored this and settled for inspecting only what Iranian authorities allowed them to see. This is an absolute farce, and European governments have clearly decided to deceive the public with such sham oversight of a sham nuclear development agreement.
Irans nuclear weapons development is not the only area that has surged in the last five years. After Russias invasion of Ukraine began, Russia entered into a production agreement with Iran, and missile production has more than doubled (reaching 700 missiles per year in 2024). When Israels president explained why Israel had to act, he said Iran aimed to produce up to 4,000 missiles per year this year and 20,000 missiles per year in six years. Furthermore, he stated that Iran already had enough enriched uranium to produce nine nuclear bombs. Israel is not the only entity threatened by Iran; for instance, through the Houthis, Iran has repeatedly carried out missile attacks on oil facilities in Saudi Arabia. In a few years, it will be impossible for the Saudis to defend their oil production. Iran therefore also represents an existential threat to Saudi Arabia as well as Israel.
While Iran is today fully preparing for a third world war, it stands unusually weak as all its allies have vanished. Hamas is in ruins, Hezbollah is in ruins, the Syrian regime has fallen, and Russia is preoccupied with its own issues. Iran is thus more isolated than ever before. Yet Iran remains extremely dangerous. They still have up to 1,500 long-range missiles and plenty of short-range missiles. Thats enough to destroy all U.S. military bases in the region, as well as warships, and devastate global oil production. Its also easy for Iran to halt all shipping from the Persian Gulf.
With the United States involvement in the Iran conflict, its clear that a chain of events has begun that could escalate the conflict, putting a third of the worlds oil production at risk.
A Planned Sequence of Events
Trumps intervention should come as no surprise, as he has always said Iran must not acquire nuclear weapons. Its likely that the U.S. has been involved in preparing these actions for a long time. The 60-day ultimatum Trump gave Iran to abandon its nuclear weapons race was probably just for show, as there was no chance Iran would comply. The U.S. has likely been preparing for conflict in the region since Trump took office. The recent alliance between Trump and all major oil-producing states (which face significant threats from Iran) is an example of this. Israel, the U.S., and the oil states are already working together, though the oil states involvement is not public to avoid making them targets for Iran.
Israels initial attack on Iran was thus only part of a larger operation. It was logical for Israel to strike first, as they have the best air defenses and could absorb the brunt of Irans missile threat. Now that these defenses are weakening, the U.S. has begun to make its first move.
What Happens Next?
The next model is the Iraq War. It took the U.S. only about 20 days to destroy all organized resistance. The U.S. is prepared, so its expected that attacks on Iran will soon multiply. The U.S. is in a race against time. They need to neutralize Iran before its missiles cause too much damage and before an irreversible oil crisis emerges.
Politics may play a role, and they might allow Iran to make the next move before going in with full force. However, its highly unlikely that Iran will change course at this point.
In the coming days, we can expect a significant increase in actions against Iran, which will no longer be limited to its nuclear program but will target all of Irans military infrastructure. This may not end until the clerical regime falls.
In Conclusion
Finally, it must be kept in mind that when it comes to the global economy, Iceland is not an island. An oil crisis and unrest will hit our economy even harder than other nations. Icelanders and Icelandic authorities need to consider this and start preparing for what is to come.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 22. júní 2025
Um bloggið
Jóhannes Loftsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 470
- Sl. sólarhring: 474
- Sl. viku: 1180
- Frá upphafi: 65629
Annað
- Innlit í dag: 414
- Innlit sl. viku: 1040
- Gestir í dag: 400
- IP-tölur í dag: 387
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar