4.2.2025 | 21:02
Glæpur Aldarinnar: Leyndarmálið
Sakaruppgjöf fyrir covidglæpi Fauci og nýleg viðurkenningu CIA á að covid væri tilraunstofuleki eru fyrstu skref af mörgum í röð uppljóstrana sem eru væntanlegar á næstunni. Enginn efast lengur um að Trumpstjórnin mun ekki hætta fyrr en allur sannleikurinn er komin fram og þeir sem lugu eru farnir að búa sig undir brotlendinguna þegar allir munu vita hvað þeir gerðu.
Það besta við að segja satt, er að sannleikurinn eldist betur en flest annað. Fyrir tæpum tveimur árum hóf ég greinaseríu í morgunblaðinu til að opna augu Íslendinga fyrir hvað raunverulega gekk á á covid-tímanum.
Hér er fyrsta greinin, sem á vel við nú því hún skýrir ansi margt af því sem nú er að koma í ljós.
==============
Grein í morgunblaðinu sem birtist 29. júní 2023:
Glæpur aldarinnar: Leyndarmálið
Sjúklingur 0 vann á kórónuvírustilraunastofu!
Þá liggur það fyrir. Ný skýrsla sýnir að þrír fyrstu covid-sjúklingarnir voru vísindamenn á Wuhan-veirurannsóknarstofunni. Einn þeirra, Ben Hu, fékk fjármagn frá bandarísku heilbrigðisstofnuninni (NIH) til að safna kórónveirusýnum frá leðurblökum um allt Kína og stökkbreyta veirunum. 2018 sótti rannsóknarstofan hans gegnum EcoHealth Alliance um styrk til bandaríska DARPA (Defense Advanced Research Projects Agency) til að stökkbreyta kórónuveiru svo hún yrði meira smitandi. Slíkur tilbúinn ofurvírus kallast á mannamáli lífefnavopn.
Þetta var því þeirra fé, þeirra rannsókn, þeirra vírus og þeirra starfsmaður. Hvernig gátu bandarísk yfirvöld verið svo grunlaus? Eða vissu þau kannski betur?
Bandarísk yfirvöld völdu að rannsókn á uppruna covid yrði stýrt af samstarfsmanni Ben Hu (Peter Daszak hjá EcoHealth) sem hafði alla hagsmuni að kenna ekki sér sjálfum um faraldurinn og varð því aðaltalsmaður þess að veiran hefði bara fyrir tilviljun birst í náttúrunni. Eftir að samskipti yfirmanns ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna (NIAID) voru gerð opinber vegna upplýsingalaga, sást að í febrúar 2020 fóru hann og forstjóri NIH í samhæft átak til að afsanna tilraunastofulekann. Þeir vísindamenn sem bentu á ónáttúru veirunnar fengu ýmist milljarðastyrki og breyttu um skoðun (sbr. Andersen) eða var ýtt til hliðar (sbr. fyrrverandi yfirmaður CDC). Facebook, YouTube og Twitter bönnuðu í heilt ár að tilraunastofuuppruninn væri ræddur á sínum miðlum. Eftir yfirtöku Elon Musk á Twitter kom í ljós að bandarísk yfirvöld höfðu beitt sér fyrir þessari ritskoðun. Í þrjú og hálft ár var logið að almenningi af yfirvöldum sem vissu betur.
Veigamesta sönnunin fyrir því að átt var við vírusinn er vírusinn sjálfur. Þetta sáu margir færustu vísindamenn heims strax og genaröðunin var birt. Átt hafði verið við svokallaðan furan-hluta í vírusnum sem ræður smiteiginleikum og hvergi í náttúrunni var slíka genaröð að finna. Eini staðurinn þar sem slíka röð var að finna var í einkaleyfi vegna bóluefnis sem Moderna sótti um 2016. Það ætti því engan að undra að það hafi aðeins tekið Moderna tvo daga að hanna bóluefnið. Það var hilluvara. Hilluvara þróuð í samvinnu við bandarísk yfirvöld sem kom í ljós þegar NIAID fékk 55 milljarða króna þóknun fyrir sinn þátt í þróun Moderna-bóluefnisins.
Í dag liggja því fyrir óyggjandi sannanir að bæði veiran og bóluefnið voru þróuð með þátttöku bandarískra yfirvalda löngu fyrir faraldurinn. Hvað gekk mönnum til og hvernig gat þetta gerst? Aðdragandinn er langur og verður hann rakinn síðar.
Stóra lexían fyrir Íslendinga af þessari lygi er að átta sig á því að þeir sem báru ábyrgð á þessum blekkingum voru notaðir af Þórólfi og íslenskum yfirvöldum sem fyrirmyndir í sóttvarnaraðgerðum.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 4. febrúar 2025
Um bloggið
Jóhannes Loftsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.2.): 49
- Sl. sólarhring: 714
- Sl. viku: 2755
- Frá upphafi: 9289
Annað
- Innlit í dag: 42
- Innlit sl. viku: 2411
- Gestir í dag: 42
- IP-tölur í dag: 40
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar