31.1.2025 | 22:53
Nær Kennedy að breyta heiminum?
Undarleg orusta átti sér stað í vikunni í bandarísku õldungadeildinni þegar Robert Kennedy yngri var yfirheyrður fyrir skipun hans sem yfirmanns heilbrigiðsmála.
Spurningarnar voru með ólíkindum. Lofarðu að reka engann? Lofar þú að kæra ekki stóru lyfjafyrirtækin? Lofarðu að segja aldrei að bóluefni séu hættuleg? Lofarðu að styðja skyldubólusetningu? Lofarðu að rannsaka aldrei skaðsemi bóluefna?
Harðast gengu Demókratarnir, Bernie Sanders og Elizabet Warren fram en það vill svo til að þau eru á toppi listans yfir þá þingmenn sem þáðu mest fé frá stóru lyfjafyrirtækjunum og heilbrigðisgeiranum, mörg hundruð milljónir. Þetta er þannig leikþáttur, síðasta vígi spilltu lyfjafyrirtækjanna til að koma í veg fyrir að aðrir en innherjar meti þeirra störf.
Sannleikurinn þolir dagsljós.
Spurningin sem situr eftir er
Ef bóluefnin eru svo skaðlaus Af hverju má ekki rannsaka það svo allir geti séð að það er satt? Af hverju eru þessir öldungardeildarþingmenn að berjast fyrir þöggun? Vilja þeir ekki frekar sanna að bóluefnin séu skaðlaus?
Leyndarmál bóluefnanna
Stærsta leyndarmál bóluefna er að alvöru samanburðarrannsóknir á heilsu óbólusettra miðað við bólusetta hefur aldrei farið fram! Þetta er gjörsamlega geggjuð staðreynd í ljósi þess hversu mikið bóluefni eru notuð.
Í dag eru komnar 72 sprautur í barnabóluefnaprógrammi bandaríkjamanna. Á sama tíma hefur algjört hrun orðið í heilsu þjóðarinnar. Gríðarleg aukning alls kyns ofnæmis, asma og alls konar taugaþroskasjúkdóma sem í sumum tilfellum hafa hundraðfaldast (einhverfa).
Einn hópur fólks virðist þó ónæmur gegn þessum heilsufarsfaraldir: Amish fólkið, sem bólusetur sig ekki.
Af hverju bóluefnin?
Venjulega sagan sem fólki er sögð um hvernig bóluefni virki, er að þeim sé gefin veikluð skaðlaus veira sem líkaminn býr til ónæmissvar við sem mun síðar verja það gegn raunverulegu veirunni.
Þessi frásögn er hins vegar ekki alveg nákvæm, því ónæmiskerfinu er ílagt að mynda ekki ónæmissvar gegn skaðlausum veirum. Það þarf meira til. Til að vekja ónæmiskerfið þarf að örva það og því er sérstöku örvunarefni (sem er með eiturvirkni) bætt í sprautuna til að búa til ónæmisviðbrögð.
Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að átta sig á því að ef ónæmiskerfið er komið á rautt hættustig og farið að mynda ónæmissvar gegn skaðlausum veirum getur það allt eins líka myndað ónæmissvar gegn öðrum skaðlausum efnum í líkamanum: t.d frjókornum, hnetum, laktósa og álíka sem eru dæmi um ofnæmi sem hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Orsakasamhengið er því svo sannarlega fyrir hendi.
Annar ókostur við örvunar(eitur)efnin sem notuð eru felst í því að gjarnan er um tilbúin efni sem mjög erfitt er fyrir líkamann að losa sig við.
Hvað varð um allt kvikasilfrið?
Eitt algengasta örvunarefnið hefur í gegnum tíðin a verið kvikasilfur. Kvikasilfur er þekkt eiturefni, og óléttum konum til dæmis ráðlagt frá því að borða túnfisk vegna of hás kvikasilfurinnihalds. Sömu konum er þó ráðlagt að fara í bólusetningu þótt bóluefnið hafi sama styrk kvikasilfurs. Opinbera skýringin á þessu misræmi var sú að bóluefni kvikaslifrið í bóluefnunum virtist hverfa úr blóði stuttu eftir sprautu.
Enginn vissi hvað varð um kvikasilfrið fyrr en ísraelskur vísindamaður framkvæmdi dýraprófanir á öpum til að leita upp hvar kvikasilfrið endaði. Niðurstaðan var óvænt. Hann fann allt kvikasilfrið í heila apanna. Eiturefnið safnaðist því upp á versta stað.
Þessi rannsókn var hins vegar þögguð fljótt niður því enginn vildi viðurkenna að bóluefni kynnu að vera skaðleg. Nokkrum árum síðar fóru framleiðendur eins og fyrir galdur smám saman að hætta að nota kvikasilfur.
Ef kvikasilfur var skaðlaust, af hverju var hætt að nota það?
Ef kvikasilfur var skaðlegt, af hverju fékk enginn bætur?
Sprungur í helgimyndinni
Eftir brotlendingu covidbóluefnanna eru nú loks sem komnar séu sprungur í bóluefnahelgimyndina sem fara stækkandi. Sannleikurinn skiptir máli, og það er bara hægt að ljúga að fólki ákveðinn tíma, en á endanum fara allir að spyrja spurninga. Af hverju virkuðu covidbóluefnin ekki, af hverju smituðust allir, af hverju sköðuðust svo margir og af hverju vilja yfirvöld ekki viðurkenna það.
og ef logið var að fólki með covidbóluefnin, hverju öðru var logið? Hvað með öryggi hinna bóluefnanna? Þarf ekki að skoða þau líka.
Nýleg rannsókn í Flórída sem sýndi þreföldun á taugaþroska röskun barna sem voru bólusett er dæmi um það sem koma skal. Ef Kennedy verður skipaður í stöðuna munu fleiri slíkar rannsóknir fá fjárheimild, því hann er búinn að lofa að slíkar rannsóknir verði gerðar. Sama mun að sjálfsögðu líka gerast með covidbóluefnin, því aldrei í sögunni hefur jafn mikilli þöggun verið beitt til að fela skaðlega virkni lyfs.
Aðeins þegar sannleikurinn er kominn í ljós mun helgimyndin hrynja og skynsemin taka yfir,
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.1.2025 | 22:41
Meira um hvernig má spara 1703 000 000 000 krónur
Sparnaðarráðin til ríkisstjórnarinnar vöktu nokkra athygli, þ.a. ég ræddi þau við Þjóðólf og við Gústaf fórum aðeins dýpra í málin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2025 | 21:45
Ábyrg framtíð býður alla nýja þingmenn velkomna
Í ljósi nýlegra viðburða vill Ábyrg Framtíð koma því á framfæri til þingmanna sem brátt þurfa að leita að nýjum flokki eftir að gamli flokkurinn er orðinn gjaldþrota, að Ábyrg Framtíð tekur við öllum opnum örmum. Öfugt við flokka sem nú eru á þingi er fjárhagsstaða Ábyrgrar Framtíðar góð því flokkurinn hefur aldrei þegið neina ríkisstyrki og skuldar því ekki krónu.
Við setjum þó það skilyrði að okkar þingmenn séu ábyrgir og vilji að yfirvöld séu líka ábyrg.
... og svo erum við með stutt inntökupróf
Í fyrri hluta prófsins er lestrarkunnátta þingmanna könnuð með sérstakri áherslu á lesskilning [svo þeir skilji lögin sem þeir samþykkja]
Seinni hluti prófsins er svo dómgreindarkrossapróf. Dæmi um spurningar sem þingmenn gætu þurft að svara eru:
- Ef barnabarn þitt týnir skó í skólanum hvað gerir þú þá?
- Skiptir þér ekki að og lætur foreldra barnsins taka á því.
- Hringir í skólastjórann og hótar honum nema hann finni skóinn.
- Ef úrskurður dómstóla er þér ekki að skapi, hvað gerir þú þá?
- Hringir í ríkislögreglustjóra um miðja nótt og heimtar að hann framfylgi ekki dómnum og hótar samráðherrum stjórnarslitum.
- Unir dómnum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2025 | 22:17
Bólusetningar valda einhverfu. Bregðast þarf við nýrri rannsókn
Splunkuný rannsókn sýnir nú að barnabólusetningar valda verulega aukinni tíðni einhverfu og annarra raskana á taugaþroska barna. https://tinyurl.com/boluefnarannsokn
Rannsóknin var samanburðarrannsókn á heilbrigðisupplýsingum frá 47155 níu ára börnum fædd 1999-2002 sem voru samfellt á Medicaid tryggingakerfinu í Flórída. 42032 voru bólusett og 5123 óbólusett.
Niðurstaðan var sláandi. Tíðni tilfella af einhverfu og allra annarra raskana á þroska taugakerfis sem voru skoðuð þrefaldaðist hjá bólusettum miðað við óbólusetta. Enn fremur þá jókst tíðnin með auknum fjölda bólusetninga og börnin sem fóru oftast í bólusetningu (11 læknisheimsóknir), voru orðin 4,4 sinnum líklegri að greinast með einhverfu.
Hönnun á þessari rannsókn var nokkuð góð og höfundar án fjárhagshagsmuna af niðurstöðunni. Niðurstaðan er einnig svo afgerandi að tölfræðilega verður að teljast útilokað að einhver utanaðkomandi skekkja gæti haft slík áhrif. Þessi niðurstaða ber með sér að stór meirihluti allra sem eru að greinast með einhverfu fengu einhverfuna vegna bólusetningarinnar. Það kemur engin önnur skýring til greina.
Þessi niðurstaða setur íslensk yfirvöld í vanda. Um árabil hafa þau séð um dreifingu og í raun markaðssetningu bóluefnanna fyrir stóru lyfjafyrirtækin án þess að vara fólk við þessari alvarlegu hættu. Veruleg aukning hefur orðið á einhverfu á undanförnum áratugum á Íslandi sem yfirvöld hafa hvergi fundið haldbæra skýringu á. Nú þegar þessi sönnunargögn eru komin fram þurfa yfirvöld að bregðast strax við og undirbúa að breyta um stefnu. Það þarf að setja strax af stað sambærilega samanburðarrannsókn sem ber saman tíðni taugaþroskaraskana milli óbólusettra og bólusettra íslenskra barna. Öll sambærileg gögn til að gera slíka rannsókn eiga að vera til. Æskilegt væri að þessi gögn yrðu kóðuð og gerð aðgengileg almenningi svo rannsóknin yrði gagnsæ og opin. Ef sama niðurstaða fæst hér og í rannsókninni í Flórída, þarf að endurmeta allar bólusetningar hér á landi.
Það þarf að upplýsa alla foreldra um þessa auknu áhættu, sem er veruleg og gæti gert lækninguna mun hættulegri en sjúkdóminn sem verja á barnið gegn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.1.2025 | 20:54
Er þjóðarsátt um fátækt ásættanleg?
Sendi inn nokkrar sparnaðartillögur til yfirvalda í gær. Þrátt fyrir að hafa ekki náð að skoða nema lítinn hluta af heildarkostnaði yfirvalda, náðist tína saman tillögu sem myndi spara Íslendingum 1703 milljarða. (=1703000000000 kr.) Engin öfgar eru í tillögunum heldur eingöngu krafa um skynsemi í framkvæmdum og að draga úr eyðslu í óviðeigandi málefni eða trúarlega öfgastefnur.
Fyrir utan töfluna hér fyrir neðan þá geta áhugasamir skoðað ýtar-útskýringar á tillögunum hér.
Niðurstaðan er að sóun á skattfé er orðin gjörsamlega yfirgengileg. Afleiðingarnar eru hærri skattar, lægri laun, tvöfalt íbúðaverð ásamt skuldsetning ungs fólks að þolmörkum og skattpíning afa og ömmu fram yfir grafarbakkann. Fólk verður að fara að byrja að hugsa. Er þetta virkilega það samfélag sem við viljum búa í eða er kannski til betri leið með að fara betur með opinbert fé?
Hér eru nokkur dæmi um ruglverkefni sem eru í dag að draga niður lífskjör almennings (m.v. fjárlög 2025 og aðrar heimildir):
- 2340 milljónir eiga að fara í kaup á kolefniskvóta á næsta ári.
- 7704 milljónir fara í styrki til orkuskipta (=niðurgreiðsla lúxusrafbíla)
- 444 milljónir fara í að borga fólki fyrir að rækta tré á eigin landi.
- 1500 milljónir eiga að fara í vopnakaup til að drepa Rússa
- 330 milljonir eiga að fara í að fjármagna skóla sem kenna Palestínubörnum dyggðina við að drepa gyðinga
- 2100 milljónir fer í opinbera ferðaþjónustu innan þjóðgarða, sem væri ella sjálfbær í höndum einkaaðila.
- Framlög til hjálparstarfs/þróunaraðstoðar hefur hækkað um 10916 milljónir frá 2006. Ef fólk vill hjálpa þróunarríkjum á að auka viðskipti en ekki gefa því annarra manna fé.
- 186 milljónir fara í að höfundarréttarstuld hljóðbókasafnsins í samkeppni við aðrar veitur sem borga höfundarlaun.
- 692 milljónir fara til stjórnmálaflokka til að gefa flokkum á þingi forskot á ný stjórnmálaöfl.
- 727 milljónir fara í að niðurgreiða rekstur hagsmunaaðila á fjölmiðlum til að auka pólitísk áhrif þeirra.
- Rúv hefur hátt í tvöfaldast í umfangi frá því fyrir fjórum áratugum, þrátt fyrir að framboð annarra fjölmiðla hafi stóraukist (og þörfin fyrir RÚV því minni).
listinn yfir vitleysis verkefnin er lengri
Stóru sparnaðarliðirnir komu þó í ljós þegar opinberar framkvæmdir voru skoðaðar. Í vegaframkvæmdur er t.d. öllum brögðum beitt til að verja undirbúning rangra heimskulegra verkefna með að útiloka að hagkvæmari kostir séu skoðaðir.
Þannig má spara:
- 25 milljarða með að fara frekar í göngubrýr og mislæg gatnamót sem gera sama gagn og sæbrautarstokkur.
- 100 milljarða með að fara í Laugarnesgöng í stað Sundabrautar.
- 10 milljarða með að leyfa bílaumferð um Fossvogsbrú.
- 15 milljarða með að breyta hönnun Selfossbrúar.
- 15 milljarða með að fara í ódýrari útgáfu Austfjarðarganga en Fjarðarheiðagöng.
- 27 milljarða með að velja frekar lausnir með mislægum gatnamótum í stað Miklubrautarganga.
Enn stærra sparnaðartækifæri sést svo þegar rekstraráætlun Borgarlínunnar er skoðuð því þar er á ferð skáldskapur sem ætti að fá Edduverðlaunin. Gert er ráð fyrir þreföldun farþega! Eina leiðin til að ná því er með risavegtollum svo efnaminna fólk hætti að hafa efni á að reka bíl. Án slìks ofbeldis verður borgarlínan rekin með 15 milljarða halla um ókomna tíð.
- Ef hætt yrði við borgarlínuna núna og strætó gerður sjálfbær myndu 432 milljarðar sparast.
Lang stærsti sparnaðurinn fæst svo með því að hætta að skuldbinda opinbert fé í vanundirbúnar framkvæmdir. Að meðaltali fara opinberar framkvæmdir 63% fram úr kostnaði. Með réttum verkefnisundirbúningstólum mætti halda þessum framkvæmdum á áætlun. Heildarsparnaður um 70 milljarða framkvæmdakostnaðar ríkisins yrði 27 milljarðar á ári um ókomna tíð eða 546 milljarðar núvirt. Það munar um minna.
Stóra spurningin sem Íslendingar þurfa að fara að spyrja sig er:
Vilum við vera fátæk þjóð með ábyrgðarlaus eyðslusöm yfirvöld eða viljum við vera rík þjóð með ábyrg hagsýn yfirvöld?
Bloggar | Breytt 25.1.2025 kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.1.2025 | 21:25
Leyndardómur Parísarsamningsins
Undirskrift Trump um að draga Bandaríkin úr Parísarsamkomulaginu á fyrsta degi kom ekki á óvart. Fáir átta sig þó á því að með undirskriftinni var hann að gera Íslendingum mikinn greiða, því hann uppljóstraði stærsta leyndarmáli Parísarsamningsins. Parísarsamningurinn er ekki samningur heldur viljayfirlýsing og því geta þjóðir einfaldlega dregið sig út ef þeim hentar. Önnur þjóð sem mun örugglega draga sig út um leið og samningurinn fer að verða óþægilegur er Kína, sem ber ábyrgð á 90% aukningu útblástrar í heiminum síðan samkomulagið var gert. Fleiri þjóðir munu fylgja.
En hvað þýðir þetta fyrir Ísland?
Jú, allar fjárfestingar í kolefnisbindinga-iðnaðinum munu líklega verða gjaldþrota til lengri tíma, því það mun enginn borga fyrir bindingu CO2 sem hefur engin áhrif. Í dag er útblástur Evrópuríkja ekki nema rétt um 12% af heildarúblæstri heimsbyggðarinnar.
Þessa augljósu hættu þurfa yfirvöld að hafa í huga þegar þau horfa til framtíðarmöguleika íslensku kolefnisniðurdælinga verkefnanna. Það að engir einkafjárfestar fáist í þessi verkefni er sterk vísbending. Það að stærstu bankar bandaríkjanna hafi nýlega dregið sig úr öllum grænum fjárfestingaverkefnum önnur vísbending um að eitthvað er að fara að breytast.
Lánin sem tekin verða til að fjármagna risaverksmiðjurnar gætu náð 100 milljörðum og munu ekki verða veit gegn viljayfirlýsingum. Það mun einhver þurfa að borga hverja einustu krónu til baka með vöxtum og vaxtavöxtum. Ef opinbera fyrirtækið sem tekur lánið getur það ekki, munu skattgreiðendur sitja uppi með reikninginn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.1.2025 | 23:14
Sakaruppgjöf fyrir glæp sem enginn má vita hver er
Þá er síðasta skítabomba Biden komin fram: Óútfylltur sakauppgafarvíxill fyrir bandamenn. Athyglisvert verður að fylgjast með hvernig eða hvort íslenskir fjölmiðlar fjalla um þessa geggjun.
Í dag veitti Biden fjölda af bandamönnum sínum fyrirfram sakaruppgjöf fyrir glæpi sem þeir kynnu að hafa framið síðustu árin. Eitt þorir hann þó ekki að nefna. Hverjir voru glæpirnir.
Þarf saklaust fólk á fyrirfram sakaruppgjöf að halda?
Auðvitað ekki.
Skoðum hvað þessir bandamenn biden voru að gera?
6.janúar rannsóknarnefndin: 1570 manns voru handteknir og margir fengu fangelsisdóm.. Rannsóknarnefndin hélt hins vegar mikilvægum upplýsingum frá verjendum sem fyrir vikið þyngdi dómana. Þetta virðist hafa verið gert í pólitískum tilgangi. Meðal upplýsinga voru falin voru myndbrot sem sýndu mótmælendur friðsamlegri en haldið var fram og myndbrot sem sýndi löggæslu leiða mótmælanda með buffallóhatt gegnum þinghúsið að þingpöllum til að mótmæla.
Með þessari fyrirfram sakaruppgjöf er Biden í raun að viðurkenna að misferli átti sér stað.
Anthony Fauci: Aðalráðgjafi covidaðgerða Bandaríkjanna.
Þetta er stóra fréttin, því Fauci var einn valdamesti maður heims á kóvidtímanum og fyrirmynd íslenska þríeykisins. Allt sem hann gerði reyndi íslenska þríeykið að apa eftir síðar eftir því sem íslensk lög leyfðu.
Þannig leið ekki nema rétt tæpir tveir mánuðir frá því Fauci byrjaði að tala fyrir grímunotkun þar til íslensk yfirvöld gleymdu fyrri boðskap og settu líka upp grímuskyldu (sjá hér 7.júní 2020, og svo hér 30 Júlí 2020)
En hver ætli glæpur Fauci hafi verið. Skoðum aðeins aðdragandann. Fyrir covid var Fauci langvaldamesti maður innan bandaríska heilbrigðisgeirans ekki síst þar sem hann stýrði rannsóknarsjóðum sem gáfu tugmilljarða dollara styrki til valdra verkefnin.
- Á ráðstefnu í október 2019 sagði Fauci að bóluefnaleið væru útilokuð í faröldrum, því það tæki áratug að þróa hættulaus bóluefni. Í framhaldsumræðu sagði hann þó að það væri leið fram hjá kerfinu ef nægjanlegt neyðarástand skapaðist. [Þá væri hægt að gera afslátt á örygginu.]
- Í janúar 2020, þegar í ljós kom sterkar vísbendingar væru fyrir því að vírusinn kæmi frá tilraunastofu í Wuhan, fór Fauci að beita sér fyrir þöggun og ritskoðun á þeirri kenningu. Þetta sýna tölvupóstsamskipti hans sem hann þurfti að birta vegna bandarískra upplýsingalaga.
- Árin á undan hafði hann nefnilega veitt fjárstuðning til sömu rannsóknarstofu í Wuhan við rannsóknir á kórónuvírusum.
- Stofnunin sem hann stýrði fékk síðan ágóða af einkaleyfi Moderna vegna þátttöku stofnunarinnar í þróun bóluefnisins. Sá ótrúlegi viðburður átti sér stað að virka efni bóluefnisins var þróað sólarhring eftir að genaröð vírusins lá fyrir. Skýringin á því er án efa sú að bóluefnið var þegar til og hafði verið þróað samhliða þróun vírusins. (bóluefni eru alltaf þróuð samhliða vírusum.) Þessu til staðfestingar var síðast uppfærsla á einkaleyfi moderna fyrir bóluefninu frá 2019 og einkaleyfi fyrir genaröð bóluefnisins má finna allt aftur til 2016.
- Fauci beitti sér líka fyrir að hætt yrði að nota skaðlausar ódýrar covid-meðferðir og staðin aðeins keypt rándýr einkaleyfisvarin lyf eins og t.d. stórhættulega tilraunalyfið remdesivir (oft kallað run-death-is-near). Run-death-is-near veldur nýrnabilun sem er lífshættulegt sjúku fólki. Mögulega er stærstur hlutið covid-andláta vegna run-death-is-near en ekki vegna covid. Flest covid-andlátin hér á landi urðu eftir að margfalt mildara omicron afbrigðið var komið af stað. Alls gáfu íslensk yfirvöld um 5100 skammta af run death is near sem gæti hafa valdið nýrnabilun í 2-400 sjúklingum miðað við tölfræðina. Ekki var þó greint hér á landi hvort nýrnabilun væri dánarorsök, því allir sem höfðu mælst covid-jákvæðir 28 dögum fyrir andlát voru sjálfkrafa skráðir sem covidandlát.
- Eins og hjá Ölmu, var hlutverk Fauci líka að fylgjast með hversu hættulegar sprauturnar voru.
Listinn yfir mögulega glæpi Fauci er langur. Athygli vekur að óútfyllta sakauppgjöfin nær aftur til 2014. Í október það ár var sett sérstakt tímabundið bann við virkniaukningar rannsóknum "gain of function" á vírusum sem tók m.a. til breytingu á SARS vírusum. Þetta sakaruppgjör virðist þannig vera beint að brotum á þessu banni, þ.e. þátttöku Fauci við að fjármagna þróun nýrra hættulegri kórónuveira. 1,2 milljónir bandaríkjamanna eru sagðir hafa látist með covid og annað eins gætu hafa látist vegna sprautanna.
Fyrir hvaða glæp ætli Biden sé að gefa sakaruppgjöf fyrir: Gerð kórónuvírusins, run death is near eða þöggun bóluefnaskaðans.
Kannski frammistaða íslenska þríeykisins hafi eftir allt saman ekki verið eins glæsilegt og nýskipuð heilbrigðisráðherra vill af láta. Ætli Kristrún viti af því.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.1.2025 kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.1.2025 | 22:10
Miklar breytingar framundan með Trump
Vænta má mikilla breytinga með endurkomu Trump.
Sagt er að sagan sé rituð af sigurvegurunum. En stærsta vandamál ráðamanna lýðræðisríkja sem reyna að breyta sögunni sér í hag er að það koma alltaf nýjar kosningar. Þegar nýir valdhafar taka við er oft ekki lengur hægt að fela skítinn.
Sjaldan hafa demókratar borið jafn stóran ósigur og í síðustu kosningum og því er umboð Trumps til að skoða hvað átti sér stað og gera raunverulegar breytingar óumdeilt. En hvað ætli komi í ljós?
2020 kosningarnar voru að mestu póstatkvæðagreiðsla, ekki var krafist skilríkja og auðveldara var að svindla en nokkru sinni fyrr, og það var gert. Dauðir kusu, ólöglegir innflytjendur kusu, kosið var í röngu fylki eða mörgum sinnum. Allt er þetta óumdeilt, en í rannsóknir í stjórnartíð demókrata sönnuðu þó ekki að þessir misbrestir væru nægjanlega umfangsmiklir til að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna. Spurning hvort að Trump muni finna eitthvað sem demókratarnir sáu ekki eða vildu ekki sýna?
6.janúar 2021 þustu Trumpstuðningsmenn inn í þinghúsið í mótmælaskyni yfir misbrestum kosninganna. Fjöldi þeirra var dæmdur í fangelsisvist og hefur Trump heitið því að veita þeim sakaruppgjöf þar sem um pólitíska fangelsun væri að ræða að hans mati. Myndir sem aðeins birtust nýlega, löngu eftir að mótmælendurnir voru dæmdir sýna að mótmælin voru mikið til friðsöm og að löggæslan leiddi mótmælendur inn í gegnum bygginguna til að mótmæla. Eins viðurkenndi FBI nú fyrst í desember síðastliðnum að á 3. tug uppljóstrara voru í mótmælendahópnum. Að hve miklu leyti voru þessi mótmæli skipulögð af yfirvöldum sjálfum til að draga athygli frá kosninga klúðrinu? Þetta verður rannsakað, og nýr yfirmaður FBI Kesh Patel, mun sjá til þess að allt komi upp á yfirborðið.
Epstein listinn. Eitt dulafyllsta sjálfsmorð seinni tíma átti sér stað þegar barnanýðingurinn Epstein, átti að hafa framið sjálfsmorð í fangelsi. Það sem gerir málið sérstakt var að hann var undir sjálfsmorðsvakt (sem klikkaði) og hafði yfir að ráða lista af hundruðum áhrifamanna sem hann átti að hafa náð tökum á með "honeytrap" og faldri myndavél (Bill Gates og Bill Clinton eru taldir mjög líklegir kandidatar á þessum lista). Næsti yfirmaður FBI Kesh Patel hefur nýlega fullyrt að þessi listi sé í höndum FBI, og hann hefur sjálfur lofað að hann muni birta nöfnin sem á listanum eru þegar hann tekur við störfum. Það verður áhugaverð lesning.
Covid. Stærsti þöggunarglæpurinn var þó án vafa ritskoðun bandarískra yfirvalda á covidtimanum, þar sem allir samfélagsmiðlar voru þvingaðir til að taka niður upplýsingar óæskilegar yfirvöldum. Þetta atferli þeirra kom fyrst í ljós þegar Musk tók yfir Twitter (nú X) og upplýsti að FBI hefði verið komið með aðsetur í höfuðstöðvum Twitter til að stýra ritskoðuninni. Svipað var uppi á teningnum á fésbókinni og instagram samkvæmt Mark Zuckerberg. Dæmi um slíka ritskoðun var t.d. þegar 100 þúsund meðlima hópar bóluefnaskaðaðra á fésbókinni voru teknir niður. Það mátti engin tala um að eitursprautan væri eitruð. Það mátti ekki vara fólk við. Þessu inngrip bandarískra yfirvalda virðast vera klárt stjórnarskrárbrot. Hver gaf skipunina?
Eins virðist sem allar helstu heilbrigðisstofnanir bandaríkjanna séu að miklu leiti orðin handbendi lyfjafyrirtækjanna, og yfirmenn ekki hikað við að ljúga þeim til hagsbóta. Það mun breytast með tilkomu Kennedy sem yfirmann heilbrigðismála og allar upplýsingar sem þessar stofnanir hafa verið að haldið frá almenningi munu því koma fram. Afar líklegt verður að telja að öll covid-bóluefnin verði bönnuð áður en langt um líður. Slíkar uppljóstranir gætu haft töluverð áhrif hér á landi þar sem núverandi Heilbrigðisráðherra var ein af þremur aðaleikurum í íslensku kovidaðgerðunum og mun þurfa að svara fyrir af hverju upplýsingum um skaðsemina var líka haldið frá almenningi hér á landi. Af hverju sinnti landlæknir ekki hlutverki sýnu að vakta lýðheilsu þjóðarinnar þegar það þurfti.
Friðhelgi bóluefnaframleiðenda aflétt: Kennedy hefur heitið því að beita sér fyrir afléttingu friðhelgi bóluefnaframleiðenda gegn skaða allra bóluefna. Eins verður í fyrsta sinn farið í stórar samanburðarrannsóknir á heilsufari bólusettra m.v. óbólusetta. Er hin mikla aukning nútímaheilsufarskvilla kannski vegna bóluefna? Miðað við margt sem Kennedy hefur sagt, þá eru miklar líkur á að svo sé. Það er kominn tími til að það verði viðurkennt, þannig að börn séu bólusett með upplýstu samþykki.
Umbylting matvælahollustu
Önnur bylting kann einnig á eiga sér stað á matvælamarkaði í bandaríkjunum þar sem mun meira af óhollum aukaefnum eru í mat. Aukaefni sem eru bönnuð í Evrópu. Þessu hefur Kennedy og Trump lofað að breyta.
Friður í Úkraínu.
Trump sýndi ótrúlegan hátt hvernig unnt er að þvinga fram frið stríðandi fylkinga á Gaza. Hann gerði það einfaldlega með að hóta innrás bandaríkjahers á Gaza ef bandarískir gíslar væru ekki látnir lausir fyrir embættistökudaginn. Vopnahléð sem nú gengur yfir þar sem byrjað er að afhenda gísla í dag (degi fyrir embættistöku) er birtingamynd þessa. Í Úkraínu er hann þegar farinn að þrýsta á að átökin endi. Á sama tíma og hann útilokar að Úkraína verði meðlimur NATÓ, eru bandaríkjamenn byrjaðir að kreista rússa með að sjóflutninga á olíu þ.a. Úflutningstekjur gætu hrunið. Gulrót og svipa. Lykillinn að friði.
... þessi upptalning er engan veginn tæmandi.
Trump gæti þannig verið að fara að byrja að kenna heiminum lexíu um hvernig það borgar sig ekki að ljúga. Sumar lygar geta orðið það stórar á endanum þeir sem sögðu þær munu tapa öllu þegar flett verður ofan af þeim. Það kannski engin tilviljun að reynt var að drepa Trump þrisvar í kosningabarráttunni og hent á hann 90 kærum til að stöðva hann.
Það tókst þó ekki og skeið breytinga er að renna upp.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Jóhannes Loftsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 10
- Sl. sólarhring: 679
- Sl. viku: 3545
- Frá upphafi: 32302
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 3301
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar